Við vinnum fyrir þig

Translate to

Yfirlýsing frá  Samninganefnd Starfsgreinasambandi Íslands

 

Í tilefni af fréttum fjölmiðla þess efnis að Framsýn stéttarfélag hefur ákveðið að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu vegna tveggja kjarasamninga vill samninganefnd  Starfsgreinasambandsins koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri:

Framsýn stéttarfélag hefur ákveðið að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu og er það í samræmi við forræði einstakra félaga á sínum málum.

Það er miður að í tengslum við þessa samþykkt þurfi að bera félaga sína þungum sökum. Samninganefnd Starfgreinasambandsins mun aldrei taka þátt í því að semja um að rýra kjör okkar fólks, hvort sem það lítur að vinnutíma, álagsgreiðslna eða annara þátta.

Í viðræðum við Samtök atvinnulífsins hefur þessi afstaða komið fram með mjög sterkum og afdráttarlausum hætti og samninganefndarmönnum á að vera það algerlega ljóst. Það má minna á að Starfsgreinasambandið sleit viðræðum við SA vegna þessara þátta. Samninganefnd Starfsgreinasambandsins mun ekki standa í skeytasendingum við félaga sína í fjölmiðlum.

Verkefni okkar er að ná samningum um bætt kjör okkar fólks, við einbeittum okkur að því í samhljómi við félaga okkar í Eflingu, Verkalýðsfélagi Akraness og  Grindavíkur.

 

Reykjavík, 20. Mars 2019

F.h. Starfsgreinasambandsins

Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri