Við vinnum fyrir þig

Translate to

Yfir 70% verðmunur á matvöru

Ný verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ sýnir að gríðarlegur verðmunur er á hinum ýmsu vörum í öllum vöruflokkum. Í 52 tilvikum af 100 var yfir 40% munur á hæsta og lægsta verði og í 24 tilvikum var verðmunurinn yfir 70%. Iceland var oftast með hæsta verðið, eða í 35 tilvikum af 100, en Bónus var oftast með lægsta verðið, eða í 63 tilvikum af 100. Hagkaup var sú verslun sem var næstoftast með hæsta verðið, eða í 21 tilviki af 100. Verðkönnunin var framkvæmd í 8 stærstu verslunum landsins.

Lítil vörukarfa 3.108 kr. dýrari í Iceland en í Bónus

Samanburður á lítilli vörukörfu með 12 vörum sýnir að spara má 3.108 krónur með því að versla í Bónus í stað Iceland. Vörukarfa þessi inniheldur vörur eins og brauð, djús, kjötbollur, banana, cheerios, handsápu og þvottaefni en vörurnar eru 13 talsins. Verðmuninn má sjá í töflunni hér fyrir neðan.

Iceland Bónus Verðmunur í % Verðmunur í krónum
Fitty samlokubrauð – 500 gr 499 349 43% 150
Tíðartappar OB original 16 stk 449 259 73% 190
Neutral storvask ódýrasta kílóverð 705 410 72% 295
Handsápa Palmolive Almond milk m/pumpu 300 ml 399 229 74% 170
Cheerios – ódýrasta kg verð 1.542 750 106% 792
Neutral storvask ódýrasta kílóverð 705 410 72% 295
St. Dalfour bláberja sulta 284 gr 669 398 68% 271
Trópí tríó – 3pl (250 ml *3) 369 195 89% 174
1944 – Hakkbollur í brúnni sósu m. kartöflumús 729 595 23% 134
Góu Hraunbitar 349 223 57% 126
Bananar 399 179 123% 220
Lyle’s golden syrup 454 gr dós 399 189 111% 210
Knorr Aromat 90 gr. staukur 329 249 32% 80
Verðmunur á vörukörfu 3.108

 

Sláandi mikill verðmunur á meirihluta varanna – oft yfir 70% verðmunur

Niðurstöður könnunarinnar eru sláandi en þær sýna að gríðarlegur verðmunur var á flestum vörunum í könnuninni. Á mörgum vörum var yfir 40% verðmunur milli dýrasta og ódýrasta valkostsins og 70% verðmunur var á fjórðungi varanna. 100% verðmunur var á frosnu lambalæri, lægsta verðið mátti finna í Bónus og í Nettó þar sem það kostaði 1.098 kr. en hæsta verðið var í í Kjörbúðinni Sandgerði þar sem það kostaði 2.109 kr. Litlu ódýrara var það í Hagkaup þar sem kílóverðið var 2.099 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði á svínakótilettum var 64%, lægst var verðið í Krónunni, 1.399 kr. kg en hæst var það í Iceland á 2.299 kr. Þá var 42% eða 801 kr. verðmunur á ferskum laxi, lægsta verðið var í Nettó, 1.898 kr. en það hæsta í Iceland 2.698 kr. en Hagkaup var einungis einni krónu lægra með 2.698 kr. kílóið. Mjög mikill verðmunur var einnig á ávöxtum og grænmeti, drykkjarvörum, þurrvörum og dósamat, brauði og kextmeti.

Nánari upplýsingar á www.asi.is

 

 

Töfluna í heild sinni má sjá í frétt á heimasíðu ASÍ

Um könnunina

Í könnuninni var hilluverð á 100 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa viðkomandi vöru. Ef afsláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina.

Könnunin var framkvæmd á sama tíma í öllum verslunum en þær eru: Bónus Hafnarfirði, Nettó Granda, Krónunni Hafnarfirði, Hagkaup í Spönginni, Iceland í Glæsibæ, Fjarðarkaupum, Costco og Kjörbúðinni Sandgerði. Í könnuninni er einungis gerður samanburður á verði en ekkert mat er lagt á gæði eða þjónustu viðkomandi verslana.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.