ASÍ: Ríkið þarf að fylgja fordæminu

ASÍ - Alþýðusamband Íslands. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.


  • Prenta
  • Senda frétt

Alþýðusamband Íslands fagnar þeirri ákvörðun borgarráðs að hætta við fyrirhugaðar gjaldskrárhækkanir Reykjavíkurborgar, en það gerir borgin til að sporna við verðbólgu og auka kaupmátt í komandi kjarasamningum. ASÍ skorar á aðra að fylgja fordæmi borgarráðs.

Forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, skorar á önnur sveitarfélög að fylgja fordæmi höfuðborgarinnar og hækka ekki sínar gjaldskrár. Það sama segir hann eiga við um ríkisstjórnina en í fjárlagafrumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir víðtækum gjaldskrárhækkunum á ýmsum sviðum sem þurfi að endurskoða.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku