Við vinnum fyrir þig

Translate to

Útreikningur veikindalauna vaktavinnufólks

Stytting vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki á opinberum vinnumarkaði tók gildi þann 1. maí sl. Á sama tíma tóku í gildi fylgiskjal 2 hjá ríki, Reykjavíkurborg og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og fylgiskjal 3 hjá sveitarfélögum . Við gildistökuna breyttist launamyndun vaktavinnufólks, t.d. fjölgar vaktaálagsflokkum og greiddur er sérstakur vaktahvati sem tekur mið af fjölbreytileika og fjölda vakta.

Sú spurning hefur vaknað hvort/hvaða áhrif þær breytingar hafa á útreikning launa til starfsmanna í veikindaleyfi. Í ljósi þess var sett saman minnisblað um útreikning veikindalauna vaktavinnufólks.

Þess ber að geta sérstaklega að ákvæði kjarasamning um laun starfsmanna í veikindum eru óbreytt að öðru leyti en því að nýjum launaþáttum hefur verið bætt við.

Allir stjórnendur, launafulltrúar og aðrir þeir sem koma að launavinnslu með einum eða öðrum hætti eru hvattir til að kynna sér minnisblaðið sem nálgast má hér.

Nánari upplýsingar um styttingu vinnuvikunnar á opinberum vinnumarkaði á heimasíðunni www.betrivinnutimi.is