Við vinnum fyrir þig

Translate to

Skilagrein Bárunnar stéttarfélags

Tilkynning til launagreiðenda varðandi iðgjöld til Bárunnar stéttarfélags.

Samkomulag hefur náðst milli Bárunnar stéttarfélags og Festu lífeyrissjóðs um að Festa lífeyrissjóður sjái um innheimtu og skráningu félagsgjalda frá 1. janúar 2009.

Iðgjöld sem hingað til hafa verið greidd inn á bankareikning Bárunnar stéttarfélags eiga framvegis að greiðast inn á bankareikning Festu lífeyrissjóðs kt. 571171-0239 (0152-26-9520) Skilagreinar vegna iðgjalda eiga þ.a.l. að berast Festu Lífeyrissjóði, Austurvegi 38, 800 Selfossi. fax 482-2945

Launagreiðendur eru hvattir til að gera nauðsynlegar breytingar í launakerfum sínum. Á heimasíðu Festu lífeyrissjóð www.festa.is hefur verið settur upp launagreiðendavefur þar sem launagreiðendur geta sótt notendanafn og lykilorð og sett þar inn skilagreinar vegna iðgjalda Bárunnar stéttarfélags á rafrænu formi.

Iðgjöld Bárunnar

Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Festu lífeyrissjóðs s.420-2100 eða á skrifstofu Bárunnar stéttarfélags s. 480-5000.