Við vinnum fyrir þig

Translate to

Konur hvattar til að leggja niður vinnu

Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55 miðvikudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund í sinni heimabyggð eða á Arnarhóli, kl. 15:30 undir kjörorðunum: Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!

Síðastliðið ár hafa frásagnir kvenna af áreitni, ofbeldi og misrétti á vinnustöðum undirstrikað að brýnt sé að tryggja öryggi kvenna og jaðarsettra hópa á vinnumarkaði. Nú er nóg komið, konur eiga að vera öruggar í vinnunni og í samfélaginu öllu! Kvennafríið í ár er helgað #MeToo.

Þess vegna eru konur hvattar til að ganga út kl. 14:55 miðvikudaginn 24. október og krefjast kjarajafnréttis og öryggis á vinnustað. Baráttufundur verður haldinn á Arnarhóli kl. 15:30 sama dag þar sem Jóhanna Sigurðardóttir fyrrv. forsætisráðherra, Claudie Wilson lögfræðingur og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ávarpa fundinn, ásamt því sem að fjöldi kvennakóra og listakvenna munu koma fram.
Samstöðufundir verða haldnir víðs vegar um land m.a. á Selfossi og eru konur hvattar til að mæta á fund í sinni heimabyggð.

Sjá  frétt á heimasíðu ASÍ.