Við vinnum fyrir þig

Translate to

Formaður FIT harðorður á 1. maí hátíðarhöldunum á Selfossi 

„Nemendur eru fengnir erlendis frá til að vinna launalausa sjalboðavinnu og ekki er hirt um að virða samninga og lögbundin réttindi. Fólk frá fjarlægjum löndum er geymt í kjallaraholum milli þess sem því er pískað út við vinnu á saumastofum. Það keppir enginn við svoleiðis rekstur ef rekstur skyldi kalla. Kannski er nær að tala um það sem plantekrur en hvað sem það heitir, þá á það ekki heima í okkar samfélagi eða atvinnulífi, hvorki hér á Suðurlandi né í öðrum landshlutum“, sagði Hilmar Harðarson, formaður FIT, stéttar og fagfélags í hátíðarræðu sinni á 1. maí hátíðarhöldunum á Selfossi í dag.

Á fimmta hundruð manns tóku þátt í kröfugöngu dagsins á staðnum en gegnið var frá húsnæði stéttarfélaganna að Hótel Selfossi þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá og kaffiveitingar í boði stéttarfélaganna. Eva Dögg Einarsdóttir landvörður í Þjóðgarðinum á Þingvöllum og trúnaðarmaður Bárunnar flutti einnig ræðu í tilefni dagsins.  Fundarstjóri var Halldóra Sigríður Sveinsdóttir formaður Bárunnar.

Aflandsfélög á íslenskum vinnumarkaði
„Það er dapurlegt staðreynd að mörg hálfgerð aflandsfélög á íslenskum vinnumarkaði eru nú að vinna sum af stærstu verkefnum á okkar byggingamarkaði. Við höfum svo síðustu daga fengið nánari vísbendingar um að þetta aflandseyjasiðferði kennitöluflakkara er því miður líka að finna hjá nokkrum aðilum sem komist hafa til áhrifa í íslenskum stjórnmálum“, sagði Hilmar ennfremur í ræðu sinni.

IMG_3875 IMG_3864 IMG_3863 IMG_3857 IMG_3845 IMG_3843 DSC_0074 DSC_0068 DSC_0064 DSC_0050