• Kjaramál
    • Kjaramál
    • Kjarasamningar
    • Contracts in english
    • Kauptaxtar
    • Stofnanasamningar
    • Eldri kjarasamningar
    • Eldri kauptaxtar
    • Samningur Launanefndar sveitafélaga
    • Wage chart
    • Ráðningarsamningur
  • Po polsku
  • Upplýsingar
    • Upplýsingar
    • Skjalasafn
    • Eljan
    • Iðgjöld
    • Lög og reglugerðir
    • Lífeyrismál
    • Fæðingarorlof
    • Réttindi atvinnulausra
  • Um okkur
    • Um okkur
    • Ársreikningar
    • Lögfræðiþjónusta
    • Reglugerð fyrir Vinnudeilusjóð Bárunnar
    • Reglugerð um ferðakostnað, risnu og gjafir
    • Starfs- og siðareglur Bárunnar
    • Starfsfólk
    • Stjórnin
    • Fundargerðir
    • Lög Bárunnar, stéttarfélags
    • Reglugerð orlofssjóðs
    • Sagan
    • Reglugerð sjúkrasjóðs
    • Fá aðstoð
  • Afsláttarkjör
    • Afsláttarkjör
    • Fyrirtæki sem veita afslátt
    • Orlofsvefur
    • Sjómennt
  • Orlofsvefur
  • Umsóknir
    • Umsóknir
    • Umsókn um sjúkrastyrk – kvittanir sendist á baran@baran.is
    • Skilagrein
    • Umsókn um sjúkradagpeninga
    • Inntökubeiðni í félagið
    • Styrkir
    • Beiðni um nýtingu persónuafsláttar
    • Umsókn úr starfsmenntasjóði
  • Starfsnám
  • Kjaramál
    • Kjarasamningar
      • Contracts in english
    • Kauptaxtar
    • Stofnanasamningar
    • Eldri kjarasamningar
    • Eldri kauptaxtar
    • Samningur Launanefndar sveitafélaga
    • Wage chart
    • Ráðningarsamningur
  • Po polsku
  • Upplýsingar
    • Skjalasafn
    • Eljan
    • Iðgjöld
    • Lög og reglugerðir
    • Lífeyrismál
    • Fæðingarorlof
    • Réttindi atvinnulausra
  • Um okkur
    • Ársreikningar
    • Lögfræðiþjónusta
    • Reglugerð fyrir Vinnudeilusjóð Bárunnar
    • Reglugerð um ferðakostnað, risnu og gjafir
    • Starfs- og siðareglur Bárunnar
    • Starfsfólk
    • Stjórnin
      • Fundargerðir
    • Lög Bárunnar, stéttarfélags
    • Reglugerð orlofssjóðs
    • Sagan
    • Reglugerð sjúkrasjóðs
    • Fá aðstoð
  • Afsláttarkjör
    • Fyrirtæki sem veita afslátt
  • Orlofsvefur
  • Umsóknir
    • Styrkir
      • Beiðni um nýtingu persónuafsláttar
    • Umsókn um sjúkrastyrk – kvittanir sendist á baran@baran.is
    • Umsókn um sjúkradagpeninga
    • Umsókn úr starfsmenntasjóði
      • Sjómennt
    • Inntökubeiðni í félagið
    • Skilagrein
  • Starfsnám
5

Einelti, kynferðislegt ofbeldi og áreiti á vinnustað verður að uppræta

22. desember 2017

Yfirlýsing frá miðstjórn ASÍ vegna #metoo byltingarinnar.

Alþýðusambandinu hefur borist áskorun frá lokuðum hópi kvenna í verkalýðshreyfingunni, sem deilt hefur sín í milli reynslu sinni af kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir í vinnunni og félagsstörfum innan verkalýðshreyfingarinnar. Þetta er í takt við þá vakningu sem orðið hefur í tengslum við  #metoo byltinguna.

Miðstjórn ASÍ ályktaði um #metoo þann 8. nóvember sl. Þar segir:

„Miðstjórn Alþýðusamband Íslands fagnar umræðu að undanförnu þar sem mikill fjöldi kvenna hefur stigið fram undir yfirskriftinni #metoo og mótmælt kynferðislegu ofbeldi og áreiti í öllum myndum og á öllum sviðum samfélagsins. Þetta er svartur blettur á samfélaginu og enn eitt dæmið um kynbundna mismunun sem uppræta ber með öllum tiltækum ráðum.

Verkalýðshreyfingin hafnar allri mismunun og órétti á vinnumarkaði. Á því byggir sjálf tilvist hennar. Í því felst að verkalýðshreyfingin hafnar hvers konar mismunun á grundvelli kynferðis, þ.m.t. kynbundnum launamun og einelti og kynferðislegu ofbeldi á vinnustað.

Miðstjórn hvetur aðildarsamtök Alþýðusambandsins og verkalýðshreyfinguna alla til að styðja með öllum ráðum einstaklinga sem stíga fram og hafna hvers konar einelti og ofbeldi á vinnustað. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra.“

Að gefnu tilefni vill miðstjórn ASÍ árétta stefnu sína í þessum málum. Alþýðusamband Íslands skuldbindur sig til að vinna gegn kynbundnu og kynferðislegri áreiti og ofbeldi á vinnustöðum og standa að eftirfarandi aðgerðum:

  • ASÍ hefur unnið stefnu og viðbragðsáætlun gegn einelti, kynbundu áreiti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Eitt af markmiðum vinnunnar er að aðildarfélög sambandsins geti nýtt afraksturinn í sínu starfi.
  • ASÍ vinnur, í samvinnu við BSRB, BHM og KÍ og Kvenréttindafélagið, að mótun aðgerðaráætlunar þar sem svara á kalli þeirra þúsunda kvenna sem stigið hafa fram og sagt frá kynferðisofbeldi, áreitni og kynbundinni mismunun sem þær hafa orðið fyrir. Verkefnið er viðamikið og ætla samtökin sameiginlega að vinna að eftirfarandi:
    • Vinna aðgengilegt upplýsinga- og fræðsluefni á grundvelli bæklingsins sem samtök launafólks gáfu út í mars 2016 um kynbundið og kynferðislegt áreiti og ofbeldi á vinnustöðum. .
    • Vinna leiðbeinandi efni fyrir starfsmenn stéttarfélaga.
    • Efla fræðslu um hvernig hægt er að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Með því t.d. að samtökin deila þekkingu og reynslu sín á milli.
    • Kortleggja þekkinguna í málaflokknum, afla upplýsinga hjá mismunandi aðilum og tengja þannig að þekkingin nýtist öllum.
    • Nýta samfélagsmiðla til fræðslu og upplýsinga. Vinna stutt myndbönd þar sem áhersla er á samfélagsleg áhrif kynferðisofbeldisins. M.a. verði skilaboðum beint til geranda sem í langflestum tilfellum eru karlar og áhersla lögð á valdamisvægi kynja o.s.frv.
    • Ráðstefna 8. mars 2018 þar sem áhersla verður á kynbundið ofbeldi og áreiti á vinnumarkaði. Þar verða öll verkefnin kynnt og lagðar fram tillögur að áframhaldandi aðgerðum.
  • Í starfsáætlun ASÍ fyrir árið 2018 er áhersla á aðgerðir gegn einelti, kynbundið og kynferðislegt áreiti og ofbeldi í allri fræðslu, hvort sem er trúnaðarmannafræðslu, fræðslu á opnum námskeiðum Félagsmálaskólans eða á sérstökum ráðstefnum. Jafnframt verða eftirfarandi viðburðir á dagskrá:
    • Tökum brúna! – kvennaráðstefna ASÍ í apríl 2018. Tveggja daga ráðstefna þar sem áhersla er á valdeflingu og tengslamyndun.
    • Karlar í verkalýðshreyfingunni – ráðstefna í apríl 2018 þar sem áhersla verður á stöðu karla og hvernig þeir geta tekið virkan þátt í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.
  • ASÍ leggur áherslu á að stéttarfélög hafi frumkvæði að því að kalla eftir nýjum leiðum og styrkja þær sem þegar eru til staðar, til að berjast gegn kynbundnu ofbeldi.
  • ASÍ gerir kröfur um að sett verði vinnuverndarstefna fyrir Ísland og að lög um aðbúnað hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum verði endurskoðuð hið fyrsta. Við þá endurskoðun verði m.a. tekið á kynbundnu og kynferðislegu áreiti og ofbeldi á vinnumarkaði.
  • ASÍ styður fyrirhugaða samþykkt á vettvangi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) og löggjöf á Evrópuvísu gegn kynbundnu ofbeldi á vinnumarkaði, þar sem mikilvægi kjarasamninga er viðurkennt.
  • Kynna þarf lagaleg réttindi fyrir þolendur kynbundins ofbeldis á vinnustað og hvaða skyldur atvinnurekandi ber til að koma í veg fyrir þessa tegund ofbeldis.
  • Mikilvægt er að breyta hugsunarhætti og ávarpa atriði eins og ómeðvitaða, stofnanalega og kerfisbundna mismunun kynja í samfélaginu, á vinnustöðum og þar með talið vinnubrögð innan verkalýðshreyfingarinnar.
  • Inngróin menning mismununar og ójafnaðar á vinnustað verður ekki skilin frá ríkjandi karlveldi og ójöfnuði kynjanna bæði innan samfélagsins og fjölskyldna.
  • Kynjajafnrétti krefst virkrar þátttöku og er á ábyrgð allra. Verkalýðshreyfingin verður að skuldbinda sig til að taka virkan þátt með fræðslu og aðgerðum sem miða að vitundarvakningu.
  • Karlar sem eru í forystu verkalýðshreyfingarinnar, samningamenn og karlar almennt eru sérstaklega hvattir til að tileinka sér það viðhorf að kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni sé aldrei samþykkt, þar með talið innan verkalýðshreyfingarinnar.
  • Verkalýðshreyfingin hvetur til þess að ráðist verði í kerfisbundið og viðvarandi átak til að tryggja að karlar, verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur skilji eðli kynbundins ofbeldis.

Þetta er sérstaklega mikilvægt til að tryggja að kynbundið ofbeldi og áreiti sé hluti af því sem tekið er á í fyrirtækja- og vinnustaðasamningum.

Mikilvægt er að halda á lofti því sem vel hefur verið gert og læra af því.

Tekið af heimasíðu ASÍ

← FYRRI FÆRSLA
Samið um launaþróunartryggingu fyrir starfsmenn hjá ríkinu
NÆSTA FÆRSLA →
40% verðmunur á jólamat milli verslana
Tilkynningar

 

Contracts in English 

The yellow one is for jobs in the puplic sector and is the main one.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

,

 
,

Układ zbiorowy

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Frímann Orlofsvefur

 

 

 

 

 

 

 

ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR?

Er trúnaðarmaður á þínum vinnustað?

Hefur þú áhuga á að starfa með okkur?

Heimilt er að kjósa einn trúnaðarmann á hverjum vinnustað þar sem starfa 5-50 starfsmenn og tvo trúnaðarmenn ef starfsmenn eru fleiri ein 50.

Endilega hafið samband við okkur hjá Bárunni, stéttarfélagi og við komum á kosningu sem allra fyrst.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Auglýsingar – tilkynningar

VIRK

Ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar

Sími 480-5000
virk@sudurland.is

 

Upplýsingar um staðgreiðslu

Staðgreiðsla 2021

Nánar: www.rsk.is

 

Síður
  • Afsláttarkjör
    • Fyrirtæki sem veita afslátt
  • Forsíða
  • Kjaramál
    • COVID 19
    • Eldri kauptaxtar
    • Eldri kjarasamningar
    • Kauptaxtar
    • Kjarasamningar
      • Contracts in english
    • Ráðningarsamningur
    • Samningur Launanefndar sveitafélaga
    • Stofnanasamningar
    • Wage chart
  • Orlofsvefur
  • Po polsku
  • Um okkur
    • Ársreikningar
    • Fá aðstoð
    • Lög Bárunnar, stéttarfélags
    • Lögfræðiþjónusta
    • Reglugerð fyrir Vinnudeilusjóð Bárunnar
    • Reglugerð orlofssjóðs
    • Reglugerð sjúkrasjóðs
    • Reglugerð um ferðakostnað, risnu og gjafir
    • Sagan
    • Starfs- og siðareglur Bárunnar
    • Starfsfólk
    • Stjórnin
      • Fundargerðir
    • Vegna aðalfundar 2020
  • Umsóknir
    • Inntökubeiðni í félagið
    • Sjómennt
    • Skilagrein
    • Styrkir
      • Beiðni um nýtingu persónuafsláttar
    • Umsókn um sjúkradagpeninga
    • Umsókn um sjúkrastyrk – kvittanir sendist á baran@baran.is
    • Umsókn úr starfsmenntasjóði
  • Upplýsingar
    • Eljan
    • Fæðingarorlof
    • Iðgjöld
    • Lífeyrismál
    • Lög og reglugerðir
    • Réttindi atvinnulausra
    • Skjalasafn
    • Starfsnám

Báran stéttarfélag - Austurvegur 56, 3ja hæð - 800 Selfoss - Sími: 480-5000 - Netfang:  baran@baran.is

Báran stéttarfélag | Einelti, kynferðislegt ofbeldi og áreiti á vinnustað verður að uppræta