Við vinnum fyrir þig

Translate to

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning sjómanna

Þann 24. júní síðastliðinn var undirritaður kjarasamningur milli Sjómannasambands Íslands annars vegar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hins vegar. Samningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki aðildarfélaganna. Samkvæmt samningnum er síðast gildandi samningur framlengdur til 31. desember 2018 með þeim breytingum sem skrifað var undir þann 24. júní síðastliðinn. Samningurinn gildir frá 1. júní 2016.

Hér fyrir neðan má sjá samninginn, kynningarefni um samninginn og kaupskrá sem mun gilda verði samningurinn samþykktur.

 

Atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram hjá aðildarfélögum SSÍ , m.a. Bárunni stéttarfélagi og mun standa til 8. ágúst næstkomandi og verða atkvæði um hann talin sameiginlega þann 10. ágúst.

Á næstu dögum munu sjómenn innan Bárunnar, stéttarfélags fá kjörgögn í hendur. Væntanlega strax eftir helgina en unnið er að því að ganga frá gögnunum í póst. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu félagsins í síma 480-5000.

Kjarasamningurinn.

Kynningarefni.

Kaupskrá.