Við vinnum fyrir þig

Translate to

Árangursríkt starf starfsmanna í velferðarþjónustu

Í kjarasamningum á árinu 2008 var samið um starfsemi VIRK og fyrstu ráðgjafar VIRK hófu störf á árinu 2009.  Síðan þá hafa um 4500 einstaklingar leitað til VIRK og um 2000 einstaklingar hafa lokið þjónustu.  Flestir sem útskrifast frá VIRK hafa getu til þátttöku á vinnumarkaði á ný. Á sama tíma og uppbygging VIRK hefur átt sér stað hefur þjóðin gengið í gegnum eitt mesta efnahagshrun síðari ára með miklu atvinnuleysi og erfiðleikum hjá fjölda fólks.  Það var og er ástæða til að óttast að þessar aðstæður valdi því að fleiri einstaklingar en áður búi við skerta starfsgetu og fari á örorkulífeyri til lengri tíma.  Rannsóknir og reynsla bæði hérlendis og erlendis hafa einnig sýnt fram á slæm áhrif langtíma atvinnuleysis á heilsu og vinnugetu einstaklinga.

Frá árinu 2009 hefur verið byggð upp öflug starfsendurhæfingarþjónusta um allt land á vegum VIRK og í samvinnu við stéttarfélög og fjölda annarra aðila.  Nú eru starfandi hjá stéttarfélögum um 40 ráðgjafar og VIRK hefur gert  samninga við fjölda úrræðaaðila og starfsendurhæfingarstöðvar um allt land til að tryggja einstaklingum fjölbreytta ráðgjöf, þjónustu og  úrræði við hæfi.  Að þessu starfi kemur því fjöldi fagaðila sem vinnur markvisst að því að bæta vinnugetu og lífsgæði fólks sem þarf á stuðningi að halda í kjölfar veikinda eða slysa.  Þessi þjónusta á án efa sinn þátt í því að færri einstaklingar hafa farið á örorkulífeyri en búast mátti við í kjölfar hrunsins enda hafa um 2000 einstaklingar lokið starfsendurhæfingu á vegum VIRK og flestir þeirra eru með vinnugetu að fullu eða hluta við útskrift.   Starfsendurhæfing skilar árangri – bæði fjárhagslegum og í formi aukinna lífsgæða og er því án efa arðbær fjárfesting fyrir einstaklinga og þjóðfélagið.

Það er ástæða til að benda á það sem vel er gert í okkar samfélagi og það er ljóst að starfsmenn innan velferðarþjónustunnar í heild sinni –  hvort sem um er að ræða VIRK, TR, STARF, Vinnumálastofnun, aðrar velferðarstofnanir eða úrræðaaðila – hafa á undanförnum árum lyft grettistaki í að sporna við alvarlegum áhrifum kreppunnar á starfsgetu einstaklinga til framtíðar.   Hér er um að mjög marga starfsmenn sem hafa oft á tíðum lagt nótt við dag til að byggja upp og tryggja góða og faglega þjónustu í samræmi við þarfir einstaklinga.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Virk