Header

Fræðslusjóður verkafólks á landsbyggðinni.

Félagsmenn í Bárunni,stéttarfélag sem starfa eftir þeim kjarasamningum sem félagið er aðili að hafa aðgang að öflugum starfsmenntunarsjóði sem heitir Landsmennt. 
 www.landsmennt.is  Umsókn um Einstaklingsstyrk  


  1. Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
  2. Styrkir eru greiddir út eftir að námi/námskeiði er lokið. Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila ásamt reikningi og staðfestingu á að námi sé lokið. Umsókn þarf að berast viðkomandi stéttarfélagi innan 12 mánaða frá því að námi/námskeiði lauk.
  3. Áunnin réttindi félagsmanna innan Landsmenntar, Sjómenntar, Starfsafls, Starfsmenntasjóðs verslunar-og skrifstofufólks, Ríkismenntar SGS og Sveitamenntar SGS og LN haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga sjóðanna. 
  4. Sá sem hverfa þarf tímabundið af vinnumarkaði af ástæðum sem valda því að ekki ber að skila tryggingagjaldi af launum hans, heldur í allt að tuttugu og fjóra mánuði þeim rétti til  starfsmenntunarstyrks sem hann hafði áunnið sér hjá sjóðnum. Að tuttugu og fjórum mánuðum liðnum, frá því hann hvarf af vinnumarkaði, fellur réttur hans að fullu niður.

  5. Foreldrar í fæðingar-eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.

  6. Atvinnulausir félagsmenn halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.

 

 Hversu hár styrkur 
Greitt er að hámarki kr. 60.000.- á ári f.o.m. 1. júlí 2008. Miða skal við almanaksárið. Aldrei er þó greitt meira en sem nemur 75% af námskostnaði. 

Get ég fengið styrk til meiraprófs 
Félagsmenn eiga rétt á styrk vegna meiraprófs að upphæð 100.000.- Hver einstaklingur getur einungis fengið slíkan styrk einu sinni. Ekki skiptir máli hvort allir fjórir þættir aukinna ökuréttinda séu teknir.

Get ég fengið styrk til tómstundanáms 
Landsmennt veitir styrki vegna tómstundanámskeiða ýmiskonar og er endurgreiðsla vegna þierra 50% af kostnaði en aldrei hærri en kr. 18.000.- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs.

Get ég fengið styrk til kaupa á hjálpartækjum 
Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar-og ritörðugleika að stríða geta sótt um allt að 75% styrk vegna kaupa á hjálpartækjum ætluðum til stuðnings við lestur og skrift. Heildarstyrkur miðast við hámarksupphæð skv. almennum reglum sjóðsins eða kr. 60.000.-

Get ég fengið styrk til íslenskunáms 
Félagsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um allt að 75% styrk vegna íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild í aðildarfélagi Landsmenntar. 

Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrki til starfsmenntunar, en er hafnað um styrk af viðkomandi verkalýðsfélagi, þá getur félagsmaður vísað umsókn sinni til verkefnisstjórnar Landsmenntar til afgreiðslu.


Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni og var síðast breytt 1. júlí 2008 en þá var hámark almennra styrkja hækkað í kr. 60.000.-.
 


Styrkir til náms vegna almennra ökuréttinda!

 

Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt hafa samþykkt að styrkja nám til almennra ökuréttinda frá 1. janúar 2008 (ath. prófum lokið eftir þann tíma). Hver félagsmaður getur einungis sótt um slíka styrki einu sinni og hámarksupphæð er sú sama og hámarksupphæðir sjóðanna eru hverju sinni þó aldrei meir en 75% af kostnaði.

 

Upphæð styrkja tekur mið af félagsgjaldi á síðasta almanaksári og reglum viðkomandi fræðslusjóða. Full réttindi skapast ef félagsgjald er kr. 14.800.- eða meira. Félagsmenn sem greiða lægra félagsgjald eiga rétt á hlutfallslegum rétti m.v. greitt félagsgjald. Til þess að eiga rétt á þessum styrkjum þurfa menn auk þess að vera starfandi þegar þeir stunda námið og hafa gert það í 6 mánuði eða lengur áður en námi lýkur.

 


 

 

Styrkir til kaupa á hjálpartækjum fyrir lestrar-og ritstuðning.

Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar-og ritörðugleika að stríða geta sótt um allt að 75% styrk vegna kaupa á hjálpartækjum ætluðum til stuðnings við lestur og skrift. Heildarstyrkur miðast við hámarksupphæð skv. almennum reglum sjóðsins eða kr. 50.000.- 


Breyting á starfsreglum

Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni og var síðast breytt 1. janúar 2009 en þá var ákveðið að greiða út styrki um leið og viðkomandi félagsmaður legði inn umsókn ásamt reikningi/kvittun vegna náms/námskeiða (gr. 3)

Sækja um einstaklingsstyrk 

 Vefur Sjómenntar 

 


 Vefur Ríkismenntar 

www.sveitamennt.is