Ályktun 23.11.09
Óásættanleg hryna uppsagna hjá Sveitarfélaginu Árborg.
Stjórn Bárunnar, stéttarfélags harmar þær uppsagnir sem hafa átt sér stað hjá Sveitarfélaginu Árborg. Uppsagnir hafa verið á yfirvinnu, skerðingu á starfshlutfalli, ræstingu og vegna endurskipulagningar. Það sætir furðu að láglaunahópar skuli skipta sköpun fyrir hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins.
Stjórn Bárunnar skorar á bæjarstjórn Árborgar að sýna fram á hvað hlýst af þessum sparnaði með tilliti til minnkandi útsvarstekna.
Bæjarstjórn sem kennir sig við félagshyggju ætti að ganga fram í því að verja þá sem lægstu kjörin hafa og skorar stjórn Bárunnar, stéttarfélags á sveitarfélagið Árborg að falla frá þeim uppsögnum sem orðið hafa.
Ályktun Bárunnar stéttarfélags um skattaáform ríkisstjórnar Íslands.
Báran stéttarfélag lýsir þungum áhyggjum við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkannna um að leiðir til aukinnar tekjuöflunar ríkissjóðs í formi skattahækkana bitni á skuldsettum heimilum og dragi úr möguleikum til aukinnar tekjuöflunnar til að standa straum af vaxandi greiðslubyrði sem auknir neysluskattar muni valda. Báran stéttarfélag lýsir jafnframt áhyggjum sínum með að auknar álögur á ferðaþjónustutengda atvinnustarfsemi kunni að bitna á störfum í greininni og vaxtamöguleikum. Báran stéttarfélag óttast jafnframt að skattaáform ríkisstjórnarinnar dragi máttinn úr allri atvinnustarfsemi á svæðinu og leiði til meiri ófarnaðar en nú þegar orðið er.
Báran stéttarfélag mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnarinnar um breytingar á skattlagningu tekna sjómanna með afnámi sjómannaafsláttarins án tillits til aðstæðna sjómannastéttarinnar, sem þurfa oft á tíðum að dvelja langdvölum fjarri fjölskyldum sínum við erfiðar aðstæður á hafi úti.
Ályktun um atvinnumál
Á meðan íslenska þjóðin glímir við djúpa kreppu í efnahags- og atvinnumálum ásamt viðvarandi atvinnuleysi í öllum landshlutum, virðist ríkisstjórn landsins skorta áræðni til að að beita sér af fullum þunga í þágu atvinnusköpunar og tryggingu atvinnuöryggis í landinu. Það er krafa Bárunnar stéttarfélags að uppbygging atvinnuvegarins hafi afgerandi forgang á komandi ári og að ekki verði síst horft til sunnlenskra byggða í því efni. Atvinnuleysi á Suðurlandi hefur verið viðvarandi frá því i oktober 2008 og hafa að jafnaði verið 800-900 manns á atvinnuleysisskrá. Verði ekki brugðist við nú þegar er veruleg hætta á að þessi hópur falli í fátæktargildru eða hverfi úr landi.
Á Suðurlandi hefur iðnaður alltaf verið mikilvæg atvinnugrein, en þessi atvinnustarfsemi á nú verulega undir högg að sækja vegna efnahagsþrenginga og hefur t.d. byggingaiðnaður orðið fyrir algeru hruni. Því hvetur Báran stéttarfélag ríkisstjórn og þingmenn okkar sunnlendinga til að huga vel að áframhaldandi iðnaðaruppbyggingu á svæðinu, einkum sem lúta að framleiðslu til útflutnings og gjaldeyrissparandi framleiðslu.
Ferðaþjónusta og menning hefur verið helsti vaxtasproti í atvinnustarsemi á félagssvæði Bárunnar stéttarfélags og því afar nauðsynlegt að ríkisvaldið hlúi vel að þeim sprotum sem hafa verið að líta dagsins ljós á undanförnum árum, en félagið óttast mjög að boðuð skattaáform ríkistjórnarinnar komi til með að hamla frekari vexti í greininni og að störf verði því færri en ella.
Landbúnaður er Sunnlendingum mikilvægur og afleidd störf mörg. Ríkisstjórn Íslands verður að tryggja að áfram verði hægt að stunda öflugan landbúnað á Suðurlandi til langrar framtíðar. Koma verði í veg fyrir að landbúnaðarjarðir fari í eiði eða falli í órækt og þarf þá sérstaklega að huga að nýliðun og sprotum í greininni.
Sjávarútvegur á sér langa og merka sögu í íslenskum sjávarbyggðum og ekki síst á Suðurlandi, þó hin seinni ár hafi þessi grein fjarað út í þorpunum við ströndina um leið og kvótinn færðist á færri hendur. Í Þorlákshöfn er enn rekinn öflugur sjávarútvegur og fiskvinnsla og hefur nokkur hópur félagsmanna notið þeirra starfa sér og fjölskildum sínum til lífsviðurværis. Báran stéttarfélag hvetur stjórnvöld til að tryggja að aflaheimildir haldist í héraði og að afli verði í sem ríkustum mæli unninn í landi. Sérstök áhersla verði lögð á fullvinnslu sjávarfangs til að hámarka þau verðmæti sem hægt er að skapa úr sjávarafurðum og auka þannig við starfsvettvang fólks í sjávarbyggðum. Auka verði úrræði til menntunar og framþróunar í greininni til að tryggja ennfrekar starfsöryggi fiskvinnslufólks.
Ályktun 10.09.09
Félagsfundur 10.09.09
Báran stéttarfélag skorar á stjórnvöld að skjaldborgin snúist um heimilin en ekki fjármagnseigendur.
Nú er komið nóg. Báran, stéttarfélag krefst þess að stjórnvöld komi á móts við heimilin og fólkið í landinu í þessu viðloðandi versnandi ástandi sem nú ríður yfir land og þjóð.
Almenningur í landinu hefur sýnt göfuglyndi og æðruleysi, tekið á sig launaskerðingar, atvinnumissi, auknar álögur, gjaldþrot og skerta þjónustu á meðan auðmenn þessa lands fá niðurfelldar skuldir og veigra sér ekki við að tala digurbarkalega um það í fjölmiðlum að það væri óábyrg meðferð á fé að greiða skuldir.
Það er ekkert lát á fréttum um niðurfellingu skulda þeirra sem peningana eiga og komu okkur í þessa slæmu stöðu sem sér ekki fyrir endann á, meðan húsnæði þeirra sem minna hafa er boðið upp og er almenningur að missa alla von og sér hreinlega ekki framtíðina fyrir sér hér á okkar ástkæru fögru fósturjörð Íslandi.
Orð skulu standa og nú skorar Báran, stéttarfélag á stjórnvöld að skjaldborgin snúist um heimilin en ekki fjármagnseigendur og hér ríki réttlátt og siðprútt samfélag.


