Við vinnum fyrir þig

Translate to

Orlofsuppbót 2018

Báran, stéttarfélag  vill minna félagsmenn á  orlofsuppbótina 2018. Full orlofsuppbót árið 2018 er  kr. 48.000. Þeir sem hafa verið í fullu starfi á orlofsárinu 1. maí 2017 – 30. apríl 2018 eiga rétt á fullri uppbót, en annars greiðist hún í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og reiknast orlof ekki ofan á orlofsuppbótina.

Starfsfólk á almennu vinnumarkaði: Fullt ársstarf telst vera 45 vikur eða meira fyrir utan orlof. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum miðað við 30. apríl sl. eða í starfi fyrstu vikuna í maí eiga rétt á uppbót.

Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga: Þeir sem hafa starfað 13 vikur samfellt á orlofsárinu eða eru/voru í starfi til 30. apríl eiga rétt á uppbót.

Orlofsuppbót á að koma til greiðslu þann 1. júní næstkomandi hjá þeim sem starfa á almennum vinnumarkaði eða hjá ríkinu, en 1. maí hjá starfsfólki sveitarfélaga.