Þverlág 6 Flúðum
4 herbergi eru í húsinu, 7 rúm og 1 barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 7 manns og borðbúnaður fyrir 8 manns. Aðrir hlutir: Sjónvarp, diskaspilari/útvarp, DVD spilari, ryksuga, barnastóll, örbylgjuofn, eldavél/bakaraofn, 3 pottar, 1 panna, 1 pönnukökupanna, brauðrist, kaffikanna, blandari, handþeytari, uppþvottavél, þvottavél, ísskápur, 2 sturtur, gasgrill, slökkvitæki, eldvarnarteppi, reykskynjari og róluvöllur.
| Helstu upplýsingar um húsið |
| Stærð í fm: 100 |
| Heitur pottur: Já |
| Svefnherbergi: 3 |
| Svefnloft: Nei |
| Svefnpláss: 8 |
| Sængur og koddar: Fyrir 7 |
| Borðbúnaður: Fyrir 8 |
| Fjarlægð frá Selfossi: 45 |
Svæðið: Flúðir er þéttbýliskjarni miðsvæðis í Hrunamannahreppi og þykir þar notalegt og fagurt. Litla-Laxá rennur í gegnum þorpið og mikill jarðhiti er á svæðinu. Ylrækt er mikil og er þar mesta svepparækt landsins. Einnig er nokkur annar iðnaður á staðnum og má nefna þar einu límtrésverksmiðju landsins. Afar fjölbreytt þjónusta er í boði fyrir ferðamenn, góð hótel, önnur fjölbreytt gisting og gott tjaldsvæði. Alls konar afþreying sem tengist jarðhita stendur til boða, og á Flúðum er góð sundlaug. Flestir ferðamenn ættu að finna hér eitthvað við sitt hæfi. Stutt er í veiði í ám og vötnum. Margir sögustaðir eru í grenndinni og má þar nefna kirkjustaðinn Hruna, en hann tengist sögunni “Dansinn í Hruna”, þegar kölski sjálfur kom nýjársnótt eina, þegar heimamenn sátu að svalli og dansi í kirkjunni, og kippt henni niður í undirdjúpin.
Nágrennið: 5 km. í þjónustu Flúðir. þar er góður golfvöllur og góð þjónusta. Fjölbreytt afþreying er í boði; sund, golf, hestaferðir, Útlaginn með lifandi tónlist og uppákomur, minjasafnið að Gröf, Gallerý Garðakúnst, fallegar gönguleiðir á fjöll og fell og stutt í þekktar náttúruperlur.





