Furulundur 8 H Akureyri
Íbúðin er 50 fermetrar að stærð, stofa, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi með kojum, baðherbergi og svalir. Húsbúnaður er fyrir 8-9 manns. Rúm og sængurfatnaður er fyrir 9 manns. Barnarúm er einnig og barnastóll( er í efri skáp á gangi). Gasgrill, útvarp, sjónvarp, sími og þvottavél. Hreinlætisvörur eru í íbúðinni og áhöld til ræstinga.
| Helstu upplýsingar um húsið |
| Stærð í fm: 50 |
| Heitur pottur: Nei |
| Svefnherbergi: 2 |
| Svefnloft: Nei |
| Svefnpláss: 9 |
| Sængur og koddar: 9 |
| Borðbúnaður: 8-9 |
| Fjarlægð frá Selfossi: |
Svæðið: Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 17.200 manns og er hann sá langfjölmennasti utan höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland. Akureyri er menningar- og skólabær sem byggir á traustum grunni. Þar starfa tvö af stærri sjávarútvegsfyrirtæki landsins og ferðaþjónusta skipar sífellt hærri sess. Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins og bærinn sjálfur er vinsæll áningastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert.
Nágrennið: Akureyri hefur upp á svo margt að bjóða. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fjölmarga hluti sem við mælum með að gestir skoði þegar þeir dvelja á Akureyri.
Lystigarðurinn – u.þ.b. 400 íslenskar plöntur auk rúmlega 7500 erlendra tegunda.
Listasafnið og Listagilið
Sundlaug Akureyrar
Húni II – eikarbátur frá 1963 sem er staðsettur við Torfunesbryggju
Veitingahús – sem bjóða upp á mat úr héraði
Kjarnaskógur
Innbærinn – söfn, kirkja og byggingar
Jaðarsvöllur – nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi
Glerárgil
Hrísey – perla Eyjafjarðar
Akureyrarvaka – uppskeruhátíð Listasumars sem haldin er í lok ágúst ár hvert
Listasumar – er frá miðjum júní til lok ágústs
Bjór frá Víking og Kalda – brugghús í héraði
Brynjuís – í uppáhaldi heimamanna
Akureyrarkirkja
Hlíðarfjall




