Hafa samband


Ýmsir nytsamlegir tenglar

Auglýsingar - tilkynningar

 

Störf í boði


Suðurland

 

Kauptaxtar 2010

Launatafla með gildistíma
frá 1. júní 2010


Kauptaxti SGS 2010

  

Akstursgjald    Febr.2010


OrlofsuppbótGreiðist 1. júní


Sóknaráætlun20/20 verkefnið
 Sóknaráætlun
   fyrir Ísland.
 

VIRK
Ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar
Sími 480-5000
virk@sudurland.



Báran
stéttarfélag

Austurvegi 56
800 Selfoss

Sími 480-5000
Fax 480-5001

 


Opnunartími
Skrifstofan er opin alla virka daga milli
8.00-16.00

Opið í hádeginu.


Fréttir og tilkynningar
Góð afsláttarkjör til félaga Bárunnar



Upplýsingar um staðgreiðslu
Staðgreiðsla 2011

Skatthlutfall í staðgreiðslu er

  • 37,31% af tekjum 0 - 209.400 kr.
  • 40,21% af tekjum 209.401 - 680.550 kr.
  • 46,21% af tekjum yfir 680.550 kr.

Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1996 eða síðar er 6% af tekjum umfram frítekjumark barna sem er kr. 100.745

Persónuafsláttur

Persónuafsláttur er kr. 530.466 á ári, eða kr. 44.205 á mánuði.
Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2010.

Einn mánuðurkr.44.205
Hálfur mánuðurkr.22.102
Fjórtán dagarkr.20.346
Ein vikakr.10.173

Ef launatímabil er annað en að ofan greinir skal ákvarða persónuafslátt þannig:
530.466 / 365 x dagafjöldi launatímabils

Nánar: www.rsk.is

Orlofshús Bárunnar, stéttarfélags um páska 2012
16. febrúar 2012.
Báran, stéttarfélag auglýsir orlofshús félagsins við Flúðir og einnig íbúð félagsins á Akureyri til umsókna fyrir páskahelgina 2012.
Umsóknarfrestur er til 9. mars og hægt er að sækja um á heimasíðu félagsins www.baran.is eða í gegnum síma Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna 480-5000. Úthlutun orlofshúsa mun liggja fyrir 15. mars.




Bunki af ályktunum sendur þingmönnum
2. febrúar 2012
Í aðdraganda endurskoðunar kjarasamninga sem fram fór þann 20. janúar sendi fjöldi sambanda og félaga innan ASÍ frá sér ályktanir þar sem vanefndir ríkisstjórnarinnar voru harðlega gagnrýndar. Á formannafundi 19. janúar kom fram sá vilji fundarmanna að öllum alþingismönnum þjóðarinnar yrðu sendar þessar ályktanir. Það hefur nú verið gert og bárust þær þingmönnum í gær undir yfirskriftinni Pacta Sunt Servanda (Samningar skulu standa).




Félagsskírteini 2012
1. febrúar 2012
Félagsskírteini Bárunnar, stéttarfélags hefur verið sent öllum félagsmönnum. Félagsskírteinið gildir jafnframt sem afsláttarkort hjá fjölmörgum fyrirtækjum á félagssvæðinu.




Hagsýni og hamingja

31. janúar 2012
Deildir Rauða kross Íslands á Suðurlandi, í samstarfi við kirkjur Suðurprófastsdæmis, kvenfélagasamböndin og verkalýðsfélög á Suðurlandi, standa fyrir stuttum og gagnlegum fræðslufyrirlestrum fyrir almenning. Fyrirlesari er Lára Ómarsdóttir fréttakona, sem á einfaldan og auðskiljanlegan hátt kynnir okkur raunhæfar leiðir til sparnaðar




Nýjir kauptaxtar komnir á vef Bárunnar, stéttarfélags
30. janúar 2012.
Hér
má finna nýja kauptaxta fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum eftir samningi SGS og SA.  Þessir kauptaxtar gilda frá 1. febrúar 2012 til og með 31. janúar 2013.





Kjarasamningar áfram í gildi - uppsagnarákvæði ekki nýtt
23. janúar 2012
Samninganefnd ASÍ hefur sl. föstudag ákveðið að segja ekki upp gildandi kjarasamningum þrátt fyrir vanefndir stjórnvalda á þeim fyrirheitum sem gefin voru við gerð þeirra. Skrifað var undir framlengingu kjarasamninga eftir hádegið í dag.




Ályktun formannfundur Starfsgreinasambands Íslands haldinn þann 18 janúar 2012
19. janúar 2012
Formannafundur SGS samþykkti eftirfarandi ályktun:
„Formannfundur Starfsgreinasambands Íslands haldinn þann 18. janúar 2012 lýsir yfir miklum vonbrigðum með vanefndir ríkisstjórnarinnar á loforðum sem gefin voru í tengslum við undirritun kjarasamninga. Aðilar vinnumarkaðarins hafa staðið við öll ákvæði samninga en það er ólíðandi að kjarasamningar skuli vera í uppnámi vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar. Það er ámælisvert að ríkisstjórnin skuli enn ekki hafa staðið við fyrirheit sín og að íslenskt verkafólk geti ekki treyst yfirlýsingum hennar. Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands  krefst þess að ríkisstjórnin efni loforð sín tafarlaust.




Vegna endurskoðunnar kjarasamninga
13. janúar 2012
Afstaða samninganefndar Bárunnar, stéttarfélags til uppsagnar á kjarasamningum.
Samninganefnd Bárunnar og Verslunarmannafélag Suðurlands funduðu sameiginlega um afstöðu beggja félaganna til uppsagnar á kjarasamningum. Góð mæting var á fundinn. Gestur fundarins var Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. Gylfi fór yfir forsendur kjarasamninga og hvernig þær hafa náð fram að ganga. Kjarasamningar voru þríðhliða samkomulag og ljóst þykir að aðilar vinnumarkaðarins hafa staðið við sinn hluta en vanefndir eru að hálfu stjórnvalda.




Svikin loforð

11. janúar 2012
Sameiginlegur fundur samninganefndar Bárunnar, stéttarfélags og Verslunarmannafélags Suðurlands haldinn á Selfossi 11. janúar 2012 harmar vanefndir ríksstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana sem undirritaðir voru í maí 2011.
Á sama tíma og aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt á sig mikið erfiði og fórnir til að ná markmiðum samningsins þá hefur ríkisstjórn velferðar, jöfnuðar og lýðræðis svikið mikilvæg loforð í þríhliða samkomulagi milli aðila



Afsláttur af hótelgistingu fyrir félagsmenn Bárunnar
11. janúar 2012. Báran stéttarfélag hefur samið við Edduhótel og Fosshótel um afsláttarkjör fyrir félagsmenn. Hótelin gefa út gistimiða sem verða til sölu á Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna. Edduhótelin eru opin yfir sumartímann og mörg Fosshótel eru opin allt árið. Félagsmenn geta því nú þegar komið á Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna og keypt afsláttarmiða á Fosshótel. Gistimiðar á Edduhótel verða seldir frá og með 18. janúar nk.  Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna í síma 480-5000.



Báran, stéttarfélag og Verslunarmannafélag Suðurlands boða samninganefndir til fundar miðvikdaginn 11. janúar nk.

6. janúar 2012. Nú er komið að því að setjast þurfi niður og fara yfir stöðuna á kjarasamningum. Endurskoðun skal, samkvæmt samningnum, lokið 20. janúar 2012 og þarf þá að liggja fyrir ákvörðun um hvort samningurinn standi eða verði sagt upp.




Skrifað undir stofnanasamning við Fangelsið á Litla Hrauni
6. janúar 2012. Báran, stéttarfélag hefur gert stofnanasamning fyrir hönd sinna félagsmanna við fangelsið á Litla Hrauni. Fangelsið hefur nokkra sérstöðu sem vinnustaður og því þótti rétt að gera samning við yfirvöld vegna starfsfólks í mötuneyti. Skrifað var undir samninginn 3. janúar sl.Forsvarsmenn Bárunnar vilja lýsa yfir ánægju sinni með samskipti við yfirmenn fangelsisins á Litla Hrauni og telja þau til fyrirmyndar.



Formannafundur ASÍ - ríkisstjórnin harðlega gagnrýnd fyrir vanefndir
6. janúar 2012. Formenn félaga innan ASÍ komu saman til fundar í morgun til að ræða forsendur kjarasamninga en fyrri endurskoðun kjarasamninganna á að vera lokið 20. janúar. Efnahagslegar forsendur standast ágætlega en þegar kemur að loforðum ríkisstjórnarinnar sem sett voru fram í sérstakri yfirlýsingu 5. maí í tengslum við gerð kjarasamningana stendur varla steinn yfir steini. Hörð gagnrýni kom fram á stjórnvöld á fundinum.



Jólakveðja frá Bárunni, stéttarfélagi
Báran, stéttarfélag óskar félagsmönnum sínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þakkar samskiptin á árinu sem er að líða.



Ríkisstjórnin svíkur almennt launafólk
14. desember 2011. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands samþykkti á fundi sínum þann 12 desember 2011 að mótmæla áformum ríkistjórnarinnar um að skattleggja lífeyrissjóði þar sem slíkt mun leiða til skerðingar á lífeyrisréttindum á almennum vinnumarkaði og auka frekar á þann ójöfnuð sem er á lífeyrisréttindum á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins. Með þessu svíkur ríkisstjórnin loforð sín frá því við undirritun kjarasamninga í vor um að jafna þessi rétt.



Oftast 30-60% verðmunur á jólabókum
8. desember 2011. Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á jólabókum í 12 bókabúðum og dagvöruverslunum  víðsvegar um landið sl. þriðjudag. Kannað var verð á 63 bókatitlum sem gefnir hafa verið út á árinu.  Mikill verðmunur var á milli verslana. Hann var í flestum tilvikum 30-60% á hæsta og lægsta verði. Lægsta verðið var oftast að finna í versluninni Bónus eða á 25 titlum af 63,  en sú verslun var einnig með fæsta bókatitla á boðstólum eða aðeins 29 af þeim 63 sem skoðaðir voru. Hæsta verðið var oftast að finna í bókabúðinni Iðu Lækjargötu eða í um helmingi tilvika. Bókabúðin Penninn- Eymundsson neitaði þátttöku í könnuninni.



Blað Bárunnar, stéttarfélags og VMS er komið út
7. desember 2011. Þriðja tölublað Eljunnar er komið út. Fjölbreytt efni er í blaðinu að venju, meðal annars er viðtal við Mörtu Kuc trúnaðarmann á Kumbaravogi. Einnig er sagt frá byggingu hafnargarðsins á Eyrarbakka sem byggður var á sjöunda áratug síðustu aldar og vel heppnuðum þingmannafundi sem stéttarfélögin héldu í október.



Ætlar ríkisstjórnin að neyða ASÍ til að segja upp kjarasamningum?
5. desember 2011. Skömmu fyrir helgi óskaði forysta ASÍ eftir fundi með formönnum stjórnarflokkanna, formönnum þingflokka stjórnarflokkanna og formönnum og varaformönnum Fjárlaganefndar og Efnahags og viðskiptanefndar. Fundað var á  föstudag. Á þessum fundum var ábyrgðarmönnum stjórnarflokkanna gerð grein fyrir þeirra stöðu sem upp gæti komið við endurskoðun kjarasamninga í janúar nk. verði áform ríkisstjórnarinnar um takmarkaða hækkun bóta almannatrygginga og sérstakar álögur á lífeyrissjóðina samþykktar á Alþingi.



Desemberuppbót 2011
      Desemb.uppbót Álag gr. 2011 Eingr.1/2 2012      samtals
Almenni samningur milli SGS og SA           48.800 kr.         15.000 kr.       63.800 kr. 
Samningur f.h. Ríkissjóðs og SGS          48.800 kr.         15.000 kr.       63.800 kr. 
Samingur SGS og Launanefndar sveitarf.          75.500 kr.   25.000 kr.     100.500 kr. 
Samningur SA vegna Sólheima við Báruna, stéttarfélag          48.800 kr.         15.000 kr.       63.800 kr. 
Samningur Dvalar og hjúkr.h.Kumbaravogs          75.500 kr.   25.000 kr.     100.500 kr. 
Vinnustaðasamningur Mjólkurbús Flóam.          48.800 kr.         15.000 kr.       63.800 kr. 
Bændsamtök Íslands og SGS          48.800 kr.         15.000 kr.       63.800 kr. 
Landsamband smábátaeigenda og SGS          48.800 kr.         15.000 kr.       63.800 kr. 
Landsvirkjun og SGS           82.775 kr.         15.000 kr.       97.775 kr. 




Eru háir vextir og verðtrygging náttúrulögmál á Íslandi
29. nóvember 2011 Rétt er að vekja athygli á þessum fundi sem Alþýðusanband Íslands boðar til. Þessi fundur er öllum opinn og hvetjum við félagsmenn til að mæta. Þetta verður fyrsti fundurinn af 3-4 um verðtrygginguna, vexti og krónuna. Sá næsti er 8. desember og svo höldum við áfram í janúar. Á þessum fyrstu tveimur fundum verður farið yfir málin í sögulegu samhengi og bornir saman ólíkir kostir í lána- og gjaldeyrismálum.  



Námskeið í gerð aðventukransa
28. nóvember 2011. Í byrjun jólaundirbúnings buðu Verslunarmannafélag Suðurlands, Báran stéttarfélag og Félag iðn- og tæknigreina félagsmönnum á jólaföndurnámskeið. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Erla Björg Arnardóttir frá Grænna landi á Flúðum. Á námskeiðinu lærðu þátttakendur að útbúa eigin jólaskreytingar og þar urðu meðal annars til margir glæsilegir aðventukransar. Þátttakendur voru sammála um að námskeiðið hafi verið skemmtilegt og lærdómsríkt.



Frá samstöðuhópi um Heilbrigðisstofnun Suðurland

23. nóvember 2011. Samstöðuhópur um HSu var á fundi með velferðarráðherra Guðbjarti Hannessyni ásamt starfsfólki og stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þriðjudaginn 15. nóvember sl. Á fundinum fór ráðherra yfir helstu kennitölur heilbrigðismála síðastliðin ár jafnframt því að útskýra hverjar breytingar hefðu orðið á málaflokknum frá efnahagshruninu.



Jólaföndurnámskeið
14. nóvember 2011. Stéttarfélögin á Austurvegi 56, Selfossi bjóða félagsmönnum sínum á jólaföndurnámskeið í borðakransagerð, hurðakransagerð (aðventukrans) og grenilengjugerð Leiðbeinandi er Erla Björg Arnardóttir frá Grænna landi á Flúðum.

Borðakransa- og hurðakransagerð efnisgjald kr. 3.000,-

21. nóv. kl. 20:00

22. nóv. kl. 18:00


Grenilengjugerð efnisgjald kr. 3.500,-

23. nóv. kl. 20:00

24. nóv. kl. 18:00




Nýr dómur - Greitt skal fyrir auknar starfsskyldur
14. nóvember 2011. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í dómi frá 3.11 sl. að atvinnurekanda, sem hyggst auka við starfsskyldur starfsmanns, beri annað af tvennu að gera það með því að eiga frumkvæði að breytingum á ráðningarsamningi eða tilkynna það skriflega eins og kjarasamningar áskilja. Þar sem hann gerði hvorugt öðlaðist starfsmaðurinn rétt til aukagreiðslna vegna hinna nýju starfsskyldna. Í málinu var einnig deilt um það hvort starfsmaðurinn ætti rétt á greiðslu bifreiðastyrks á uppsagnarfresti þar sem ekki var krafist vinnuframlags hans og komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að svo væri.



Bónus, fyrirtæki ársins á Suðurlandi
12. nóvember 2011. Bónus var í dag valið fyrirtæki ársins 2011 á Suðurlandi af félagsmönnum Verslunarmannafélags Suðurlands og Bárunnar, stéttarfélags. Niðurstaðan var kynnt í nýrri verslun fyrirtækisins við Larsenstræti á Selfossi. Þór Hreinsson skrifstofustjóri Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á Suðurlandi afhenti verslunarstjóra fyrirtækisins viðurkenningarskjal og einnig fengu starfsmenn Bónus blómakörfu við það tækifæri. Fram kom í máli hans að mannauður er dýrmætasti hluti hvers fyrirtækis og að Bónus væri vel að verðlaununum komið. Markmið könnunarinnar er að gefa starfsmönnum tækifæri að koma skoðunum sínum á framfæri og skapa þannig grundvöll til að ræða vinnuaðstæður og kjör.



Launþegar athugið

4. nóvember 2011. Rétt þykir að árétta að samkvæmt síðustu kjarasamningum skal greiða álag á desemberuppbót. Allar upplýsingar eru undir flipanum Kjaramál hér á síðunni



Samfélagslegt tap vegna svartrar vinnu smærri fyrirtækja 13,8 milljarðar á ári
4. nóvember 2011. Í tengslum við gerð kjarasamninga í vor skapaðist umræða um hvernig minnka mætti svarta atvinnustarsemi og bæta viðskiptahætti í landinu. Árangurinn var átaksverkefnið „Leggur þú þitt af mörkum?“ sem unnið var í samvinnu Ríkisskattstjóra (RSK), ASÍ og SA. Heimsótt voru yfir tvö þúsund lítil og meðalstór fyrirtæki í sumar og fengu 55% þeirra athugasemdir. Rætt var við sex þúsund starfsmenn og reyndust 12% þeirra vinna svart, flestir á Vestfjörðum. Tap þjóðarbúsins vegna svartrar atvinnustarfssemi nemur 13,8 milljörðum á ári.



50–81% verðmunur á umfelgun
19. október 2011. Nú þegar vetur er að ganga í garð þurfa bíleigendur sem ekki aka á heilsársdekkjum að huga að dekkjaskiptum, en frá 1. nóvember er leyfanlegt að setja nagladekkin undir. Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu fyrir nokkrar tegundir bíla hjá 37 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. mánudag. KvikkFix í Kópavogi var með lægsta verðið í könnuninni á þjónustu fyrir smábíla og meðalstóra fólksbíla, en allt að 3.300 kr. verðmunur var á þeirri þjónustu á milli verkstæða eða 72%.  



Starfshópur skal móta nýtt framtíðarskipulag SGS
18. október 2011. Þing Starfsgreinasambands Íslands samþykkti í gær að skipa 7 manna starfshóp sem á að fara í ítarlega vinnu við að móta framtíðarskipulag Starfsgreinasambandsins. Störfum þessa hóps lýkur á framhaldsþingi sem haldið verður í síðasta lagi í maí 2012. Verkefni starfshópsins er að fara yfir framtíðarskipulag SGS, m.a. endurskoðun á hlutverki, starfsemi, stjórnkerfi, rekstri og lögum sambandsins með það að markmiði að einfalda stjórnkerfið, draga úr rekstrarkostnaði og færa starfsemi sambandsins að breyttu umhverfi aðildarfélaganna. 



Ályktanir þings Starfsgreinasambands Íslands
14. október 2011. Þingi Starfsgreinasambandsins sem hófst í gær var framhaldið í morgun með nefndarstörfum. Þingið samþykkti um hádegið eftirfarandi ályktanir, allar samhljóða. Tillaga um ályktun um afnám verðtryggingar var felld.



Fyrirtæki ársins 2011
7. október 2011. Nú hefur verið ákveðið að fara aftur af stað með að velja fyrirtæki ársins á Suðurlandi. Verslunarmannafélag Suðurlands stóð fyrir samskonar könnun fyrir nokkrum árum. Könnunina er að finna inni í Eljunni, blað Verslunarmannafélags Suðurlands og Bárunnar, stéttarfélags sem fór í dreifingu í byrjun vikunnar.



Eljan er komin út

5. október 2011. Í blaðinu má meðal annars finna viðtöl við tvo nýja forystumenn í verkalýðshreyfingunni,nýkjörinn formann Landssambands íslenzkra verzlunarmanna Stefán Einar Stefánsson og nýráðinn framkvæmdastjóra Starfsgreinasambands Íslands Kristján Bragason. Einnig er viðtal við Ágústu Guðmundsdóttur ráðgjafa hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði um þjónustu fyrir þá sem ekki geta sinnt vinnu sinni af heilsufarslegum ástæðum.



Bullandi ágreiningur um ákvörðun innanríkisráðherra í fangelsismálum
30. september 2011. Á fundi stéttarfélaganna með þingmönnum Suðurkjördæmis sem haldinn var á Eyrarbakka þann 28. sl. kom sterkt fram í máli þeirra að ákvörðun Ögmundar Jónassonar félli í grýttan jarðveg sunnlendinga. Þingmenn töldu ákvörðun ráðherrans ekki eiga sér lagaheimild og eins og einn þingmaðurinn orðaði það „hættum þessu Hólmsheiðarbulli og byggjum við á Litla Hrauni“.



Þjónustuskrifstofa stéttarfélaganna á Suðurlandi verður lokuð eftir hádegi í dag
30. september 2011, Þjónustuskrifstofa stéttarfélaganna á Suðurlandi á Austurvegi 56 Selfossi verður lokuð eftir hádegi í dag föstudaginn 30. september. Ef erindið er áríðandi hafið þá samband við Þór í síma 865-6020.



Fundur með þingmönnum Sunnlendinga um atvinnumál
28.september 2011. Við minnum á fundinn með þingmönnum Suðurkjördæmis að Stað á Eyrarbakka kl. 20.00 í kvöld.  Mætum sem flest og látum rödd okkar heyrast.



Félagsfundur Bárunnar stéttarfélags
22. september 2011. Við viljum minna á félagsfund Bárunnar sem haldinn verður í kvöld kl. 20.00 í sal Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á Austurvegi 56, Selfossi.

Meðal efnis á fundinum er kynning á starfi félagsins og kosning fulltrúa á þing Starfsgreinasambands Íslands.

Félagar, mætum öll og tökum ábyrgð á eigin málum.





Námskeiðið Á tímamótum
21. september 2011. Báran stéttarfélag í samvinnu við Fræðslunet Suðurlands bjóða þeim félagsmönnum sem huga að starfslokum vegna aldurs að sækja námskeiðið Á tímamótum.



Opinn fundur um atvinnumál með þingmönnum Suðurkjördæmis
21. september 2011. Báran, stéttarfélag, Verslunarmannafélag Suðurlands, Félag iðn- og tæknigreina, Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi og Verkalýðsfélag Suðurlands boða til fundar þar sem rædd verður staða og framtíð atvinnumála á Suðurlandi.

Fundurinn verður haldinn í Félagsheimlinu Stað á Eyrarbakka miðvikudaginn 28. september kl. 20.00. Fundarstjóri verður Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands.




Nýr kjarasamningur fyrir landbúnaðarverkafólk
14. september 2011. Bændasamtök Íslands hafa samið við Starfsgreinasamband Íslands og um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk sem vinnur almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Samningurinn er afturvirkur og gildir frá og með 1. júní 2011 til 31. janúar 2014. Fyrirvari er á kjarasamningnum þar til stjórn BÍ hefur samþykkt hann en hún fundar í þessari viku. 





Kjarasamningur við Sólheima

 

Talin hafa verið atkvæði um kjarasamning milli Bárunnar, stéttarfélags og Sólheima ses.

 

Niðurstaðan er sem hér segir:

Á kjörskrá voru 34

Greidd atkvæði voru 13 og kjörsókn því 38%

 

Já sögðu 12 eða 92%

Nei sagði 1 eða  8%

Auðir eða ógildir 0

 

Samningurinn er því samþykktur og gildir til 30. júní 2014



Samningur við Kumbaravog
24. ágúst 2011. Talin hafa verið atkvæði vegna kjarasamnings Bárunnar, stéttarfélags við Kumbaravog ehf. Á kjörskrá voru 44 og kjörsókn var 50%.
Samningurinn var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Nýr samningur gildir til 30. júní 2014.




Barnagleraugu í óskilum
23. ágúst 2011. Bleik/fjólublá Barnagleraugu fundust í afgreiðslurými Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á Suðurlandi. Þeir sem sakna gleraugnanna geta haft samband í síma 480-5000



Norrænt þing starfsfólks í matvælaframleiðslu á Selfossi
19. ágúst 2011
Þing Nordiska Unionen, samtaka launafólks í matvælaframleiðslu á Norðurlöndum, verður haldin á Selfossi daganna 21-23 ágúst.




Vegna verkfalls leikskólakennara

18. ágúst 2011
Eins og flestum er kunnugt þá hefur Félag Leikskólakennara boðað verkfall frá og með 22. ágúst nk. hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Þar sem okkar félagsmenn starfa á leikskólum við hliðina á leikskólakennurum sem hugsanlega fara í verkfall, er nauðsynlegt að hafa í huga hvað gæti talist verkfallsbrot, þ.e. verði túlkað þannig að okkar fólk sé að ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli. Meðfylgjandi eru viðmiðunarreglur Félags leikskólakennara sem félagið leggur til grundvallar á verfallsvörslu sinni
sem framkvæmd verður af Félagi leikskólakennara og á ábyrgð þess.

Báran, stéttarfélag hvetur félagsmenn til að sýna Félagi leikskólakennara stuðning í þessari kjarabaráttu og virða eftirtaldar viðmiðunarreglur í verkfalli sem stjórn Félags leikskólakennara hefur samþykkt.

 



Kjarasamningur samþykktur

20. júlí 2011. Félagsmenn í Bárunni, stéttarfélagi samþykktu nýgerðan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga. 92,3% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já. Samningurinn var samþykktur með afgerandi hætti í öllum aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins.


Samningurinn í heild sinni er
hér
Launataflan er
hér




Frá almennum félagsmönnum innan aðildafélaga SGS

12. júlí 2011. Eftirfarandi bréf hefur verið sent til formanns Starfsgreinasambandsins og til Morgunblaðsins:


Ástæðan er að við erum nokkur hópur félagsmanna víða af landinu sem er mjög ósáttur við afgreiðslu framkvæmdarstjórnar Starfsgreinasambandsins í kjölfarið á skoðun sem framkvæmd var á fjárreiðum sambandsins. Erfiðlega hefur gengið að fá haldbær svör og því er þessi leið farin. Formaður sambandsins lagði fram þá tillögu sem samþykkt var og því er þessum spurningum beint til hans. Ekki var einhugur um þessa afgreiðslu innan stjórnarinnar og vildi hluti stjórnar fara aðra leið sem hefði verið eðlilegri að okkar mati.




Kynningarfundur vegna sveitarfélagssamnings á morgun í sal ÞSS Selfossi
12. júlí 2011. Þann 30. júní sl. var undirritaður samningur milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambands íslands vegna félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögum. Báran er aðili að Starfsgreinasambandi Íslands.

Kynningarfundur vegna kjarasamningsins verður haldinn miðvikudaginn 13. júlí klukkan 12.00 í sal Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna, Austurvegi 56, Selfossi. Í boði verður léttur hádegismatur.





Launamenn, athugið launaseðla !
12. júlí 2011. Nokkuð hefur borið á ákveðnum misskilningi hvað varða nýgerða kjarasamninga. Þeir samningar sem búið er að samþykkja kveða á um prósentuhækkun eða krónutöluhækkun. Miðað við launatöflur sem fylgja undirrituðum kjarasamningum þá er ljóst að um sameiginlega túlkun Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands er að ræða.



Kjarasamningur samþykktur

4. júlí 2011. Kjarasamningur SGS f.h. aðildarfélaga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs var samþykktur í póstatkvæðagreiðslu.



Kjarasamningur við sveitarfélögin
4. júlí 2011. Starfsgreinasamband Ísland fyrir hönd aðildarfélaga skrifaði undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga í síðustu viku eftir langar og strangar viðræður.




Kjarasamningur samþykktur

27. júní 2011. Kjarasamningur SGS f.h. aðildarfélaga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs var samþykktur í póstatkvæðagreiðslu.



Á að launa misferli í starfi með feitum starfslokasamning?

10. júní 2011. Undirritaðir stjórnarmenn í Bárunni, stéttarfélagi lýsa megnri óánægju sinni með afgreiðslu meirihluta framkvæmdarstjórnar Starfsgreinasambandsins vegna gruns um misferli fyrrverandi framkvæmdarstjóra.




Hækkanir á bótum almanna- og atvinnuleysistrygginga í kjölfar kjarasamninga
8. júní 2011. Í nýafstöðnum kjarasamningum lagði Alþýðusambandið ríka áherslu á að lífeyrisþegum og atvinnuleitendum yrðu tryggðar sambærilegar kjarabætur og launafólki og gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu þess efnis í tengslum við kjarasamningana. Velferðarráðherra kynnti í gær þær hækkanir á bótum almanna- og atvinnuleysistrygginga sem gerðar hafa verið í kjölfar þessa.



Nokkrar staðreyndir vegna umfjöllunar um endurskoðun á fjárreiðum Starfsgreinasambands Íslands og starfsloka framkvæmdastjóra

3. júní 2011. Vegna þeirra orða sem féllu í blaðagrein í Morgunblaðinu laugardaginn 28. maí 2011 þykir undirrituðum rétt að eftirfarandi komi fram:
Í lengstu lög höfum við viljað forðast opinbera umræðu um þau málefni sem rakin eru í umræddri blaðagrein, en nú er svo komið að við sjáum okkur ekki annað fært en svara þeirri kröfu sem þar kemur fram. Ljóst má vera að margir munu reyna allt til að gera undirrituð ótrúverðug í augum þeirra sem ekki þora að takast á við sannleikann í málinu.




Ályktanir samþykktar á stofnþingi ASÍ-UNG
30. maí 2011. Stofnþing ASÍ-UNG ályktaði um nokkur mál sem brenna á ungu fólki í dag eins og svo oft áður. Þetta eru menntamál, húsnæðismál, jafnréttismál og fjölskyldumál.



Eingreiðsla og álag á orlofsuppbót
27. maí 2011. Rétt er að vekja athygli á að 50.000,- eingreiðsla samkvæmt nýjum kjarasamning skal koma til greiðslu núna um næstu mánaðarmót, þ.e. eigi síðar en 1. júní 2011. 

Orlofsuppbót kr. 26.900,- greiðist 1. júní. Álag á orlofsuppbót kr. 10.000,- greiðist einnig 1. júní.




Kjarasamningar samþykktir

25. maí 2011. Þau aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands sem sambandið hafði samningsumboð fyrir í kjaraviðræðum hafa öll samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samtök Atvinnulífsins. Samningurinn gengur í gildi 1.júní nk. og gildir til þriggja ára svo framarlega sem ríkisvaldið og Alþingi skili sínu.





Mikill meirihluti félagsmanna Bárunnar, stéttarfélags segir já

25. maí 2011. Niðurstaða Kjörstjórnar Bárunnar stéttarfélags vegna atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli SGS og SA liggur fyrir. Já sögðu 87%. Atkvæðagreiðslan stóð yfir frá því kjörseðlar voru sendir út til félagsmanna þann 12. maí sl. og lauk kl. 16.00 í gær. Niðurstaðan hefur verið tilkynnt sáttasemjara og Samtökum atvinnulífsins.



Tvö ný fræðsluerindi um kjarasamningana
19. maí 2011. Sú nýjung hefur verið tekin upp við kynningu á nýgerðum kjarasamningum aðildarsamtaka ASÍ og SA að sérfræðingar Alþýðusambandsins taka fyrir einstaka þætti samningsins og segja frá þeim á sérstökum vídeófundum.





Ágæt mæting á aðalfund Bárunnar
19. maí 2011. Aðalfundur Bárunnar, stéttarfélags var haldinn 16. maí sl. Á fundinum var farið yfir störf félagsins á síðasta ári í skýrslu stjórnar og kynntur ársreikningur félagsins.  Á fundinum var kosið til hluta stjórnar og í nefndir félagsins til næsta aðalfundar. Samþykktar voru breytingar á lögum félagsins um stjórnarkjör.




Aðalfundur Bárunnar, stéttarfélags.

16. maí 2011. Við minnum á aðalfund Bárunnar, stéttarfélags í kvöld kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í sal Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna Austurvegi 56 Selfossi.


Venjuleg aðalfundarstörf.


Boðið verður upp á léttar veitingar á fundinum.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í ákvörðunum sem varða félagið. Styrkur hvers félags felst í virkri þáttöku félagsmanna.

 

Stjórnin.



Vegna kjarasamninga

13. maí 2011. Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla vegna kjarasamninga. Kjörseðlar hafa verið sendir út til þeirra félagsmanna Bárunnar, stéttarfélags sem rétt hafa til að greiða atkvæði samkvæmt gögnum stéttarfélagsins.



Kynningarfundir vegna kjarasamninga
11. maí 2011. Báran, stéttarfélag og Verslunarmannafélag Suðurlands verða með opna kynningarfundi þar sem farið verður yfir helstu atriði kjarasamnings sem undirritaður var 5. maí s.l. við Samtök atvinnulífsins.

Á Hótel Selfossi þriðjudaginn 17. maí klukkan 18:00

Á Hótel Flúðum miðvikudaginn 18. maí klukkan 18:00

Súpa og brauð verður í boði á fundunum.





Áróður Seðlabanka Íslands vegna kjarasamninga í hæsta máta ósmekklegur
10. maí 2011. Félagsfundur Bárunnar, stéttarfélags á Selfossi haldinn 9 maí 2011 mótmælir harðlega afskiptum hagfræðings Seðlabanka Íslands af kjaraviðræðum. Fundurinn telur það ekki í verkahring Seðlabankans eða starfsmanna hans að hafa skoðanir með eða á móti óundirrituðum kjarasamningum.



Fjallað um veikindi og starfsendurhæfingu í nýjum kjarasamningi
10. maí 2011. Í kjarasamningum aðildarsamtaka ASÍ og SA, sem undirritaður var 5. maí 2011, er sérstaklega kveðið á um veikindi og starfsendurhæfingu og aðkomu launþega- og vinnuveitendasamtaka að stýrihópi á vegum VIRK. Í samningnum segir að samningsaðilar einsetji sér að endurskoða uppbyggingu á fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu og vinnuvernd.




Meginmarkmið Starfsgreinasambandins í höfn með nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins
6. maí 2011. Á heimasíðu Starfsgreinasambandsins kemur fram að meginmarkmið samninganefndar SGS var að endurheimta þann kaupmátt sem glatast hefur frá upphafi efnahagshrunsins, minnka atvinnuleysið og tryggja hinum lægst launuðu auknar kjarabætur. Sá samningur sem undirritaður var í gær er veigamikill þáttur í þeirri vegferð, upphaf að endurreisninni



Helstu atriði í yfirlýsingu ríkisstjórnar í tengslum við kjarasamningana
6 maí 2011. Ríkisstjórnin hefur gefið út sérstaka yfirlýsingu í tengslum við gerð kjarasamninganna 4. maí. Hún er afrakstur samráðs stjórnvalda og aðila á almenna vinnumarkaðinum. Yfirlýsingin byggir m.a. á áherslum sem Alþýðusamband Íslands hefur lagt fram í samskiptum sínum við stjórnvöld. Áherslur sem lúta að bættum lífskjörum, meiri atvinnu, velferð og menntun. Með yfirlýsingunni skuldbinda stjórnvöld sig til að leggja grunn að varanlegum hagvexti og velferð í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins. Meginatriðið er að örva hagvöxt með arðsömum og sjálfbærum fjárfestingum, án þess aðmarkmiðum um afkomu ríkissjóðs sé ógnað. Hér á eftir er gerð stutt grein fyrir nokkrum efnisatriðum yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar. 



Helstu atriði nýrra kjarasamninga
6. maí 2011. Stéttarfélögin hafa lagt mikla áherslu á að tryggja félagsmönnum sínum launahækkanir þessa árs, en fullyrða má að þær kjaraviðræður sem fram hafa farið á undanförnum mánuðum séu þær erfiðustu sem átt hafa sér stað áratuga skeið. Fyrir utan erfitt efnahaglegt árfeði var ýmislegt annað sem truflaði.



Félagsfundur

5. maí 2011. Félagsfundur verður haldinn í Bárunni, stéttarfélagi mánudagskvöldið 9. maí nk. að Austurvegi 56 í sal á 3. hæð á Selfossi. Fundurinn hefst kl. 20.00.  



4% verðmunur á matarkörfunni í lágvöruverðsverslunum
4. maí 2011. 4% verðmunur reyndist vera á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum síðastliðinn mánudag. Matarkarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði 24.420 kr. en dýrust í Nettó á 25.437 kr. sem er 1.017 kr. verðmunur. Kostur neitaði þátttöku í könnunni.



Stefnt að undirritun samninga í dag
4. maí 2011. Fundað var í öllum fundarsölum í húsakynnum ríkissáttasemjara í gærkvöldi og hefjast fundir á ný fyrir hádegi í dag. Verið er að ganga frá síðustu lausu endunum í samningum aðildarsambanda ASÍ við SA.



Eljan

4. maí 2011. Fréttablað Verslunarmannafélags Suðurlands og Bárunnar, stéttarfélags er komið út. Meðal efnis í blaðinu er grein um álag í starfi. Félagsmenn stéttarfélaganna kvarta oftar en áður undan auknum kröfum atvinnurekenda um aukin afköst í daglegu starfi og spurning hver hagnaðurinn verði þegar upp er staðið. Einnig er viðtal við Lovísu Guðnadóttur um reynslu hennar af starfsemi Virk, starfsendurhæfingu og Davíð Jóhannesson vinnuvélastjóra um stöðu og framtíð verkalýðshreyfingarinnar.



Góð þátttaka í 1. maí hátíðarhöldum á Selfossi
2. maí 2011. Góð þátttaka var í 1. maí hátíðarhöldunum á Selfossi í gær sem hófust með kröfugöngu frá Tryggvatorgi. Hestamenn úr Sleipni fóru fyrir göngunni. Hátíðardagskráin fór fram fyrir utan húsnæði stéttarfélaganna að Austurvegi 56. Björgvin Franz Gíslason stýrði dagskránni og skemmti gestum ásamt ævintýrapersónum úr Stundinni okkar. Halldóra Sigríður Sveinsdóttir formaður Bárunnar stéttarfélags var ræðumaður dagsins.



Kröfuganga og fjölbreytt hátíðardagskrá 1. maí á Selfossi
29. apríl 2011. Báran stéttarfélag, Verslunarmannafélag Suðurlands, Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi og Félag iðn- og tæknigreina standa fyrir dagskrá á alþjóðlegum baráttu- og hátíðardegi  verkalýðshreyfingarinnar sunnudaginn 1. maí n.k.




Kjaraviðræður í hnút- verkfallsboðun rædd

27. apríl 2011.  Það er gamall sannleikur og nýr að ekkert fæst án baráttu. Í þeirri baráttu er verkfallsvopnið öflugt en vandmeðfarið. Það ber að nota af ábyrgð. Nú er nauðvörn.



Eina ráðið að vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara
27. apríl 2011. Samninganefnd Alþýðusambands Íslands ákvað á fundi í gær að beina því til aðildarsambanda og félaga að vísa kjaradeilum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Það er nauðsynlegt til að knýja á um launahækkanir á þessu ári.



Gleðilega páska

20. apríl 2011. Báran, stéttarfélag óskar öllum félagsmönnum sínum gleðilegra páska. Þjónustuskrifstofan opnar aftur þriðjudaginn 26. apríl.



Orlofshús Bárunnar, stéttarfélags fyrir sumar 2011

20. apríl 2011. Við viljum minna á að síðasti dagur til að sækja um orlofshús fyrir sumarið er þriðjudagurinn 26. apríl. Hægt er að sækja um rafrænt á heimasíðu félagsins.



Tillaga SGS að lausn í kjaradeilu

18. apríl 2011. SGS hefur lagt fram tilboð að kjarasamningi við SA hjá ríkissáttasemjara í dag. Tilboð SGS hljóðaði upp á samning til eins árs með 15.000 kr. taxtahækkun frá 1. mars að telja og almenna kauphækkun upp á 4,5% svo og hækkun lágmarkstekjutryggingar í 200.000 kr.  Auk þess sem SGS lagði áherslu á að þar sem samkomulag hefur náðst í sérmálum undanfarnar vikur – héldi það samkomulag inn í nýjan samning.



Kjaraviðræðum slitið
18. apríl 2011. Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum milli aðila vinnumarkaðarins. Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar yfirgáfu karphúsið á tólfta tímanum sl.föstudagskvöld. Á vef ASÍ má sjá eftirfarandi yfirlýsingu:

"Í upphafi þeirra kjaraviðræðna sem staðið hafa undanfarna mánuði lögðu Samtök atvinnulífisins ríka áherslu á að gerður yrði kjarasamningur til þriggja ára. Rökin voru þau að slíkur samningur myndi skapa stöðugleika sem nauðsynlegur væri á vegferð þjóðarinnar út úr mestu kreppu síðari tíma á Íslandi. Þetta var kölluð atvinnuleiðin. Þrátt fyrir takmarkaðan áhuga ASÍ og aðildarsamtaka þess í fyrstu á langtíma samningi, vegna óvissu í efnahagsmálum, var ákveðið að hefja viðræður á þessum nótum og skoða hvað áynnist.




Nýr vettvangur fyrir ungt launafólk

13. apríl 2011. Í síðustu viku var haldinn fundur á Selfossi vegna stofnunar vettvangs fyrir ungt launafólk innan Alþýðusambands Íslands. Markmið verkefnisins er að kalla efir  sjónarmiðum ungs launafólks um verkefni, hlutverk og skipulag vettvangs fyrir ungt launafólk innan ASÍ.  Margar góðar hugmyndir komu frá þátttakendum sem unnið verður með áfram.   



50-75% verðmunur á umfelgun
7. apríl 2011. Þann 15. apríl eiga vetrardekkin að vera horfin undan bifreiðum landsmanna enda komið vor skv. almanakinu. Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 36 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. mánudag. Þjónustan var könnuð fyrir nokkrar tegundir fólksbíla. KvikkFix var með lægsta verðið í könnuninni í öllum tilvikum, en allt að 3.499 kr. verðmunur var á þjónustu hjólbarðaverkstæðanna við að skipta, umfelga og jafnvægisstilla dekk á 16´´ álfelgu undir meðalbíl.



Óbreytt yfirlýsing ríkisstjórnarinnar er ekki grundvöllur til að byggja á
31. mars 2011. Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambandsins segir þá yfirlýsingu sem ríkisstjórnin kynnti aðilum vinnumarkaðarins í dag ganga of skammt. Hann vill ekki fara efnislega í hvað það er sem standi í ASÍ en segir það einkum vera atriði sem lúti að atvinnu-, skatta- og lífeyrismálum.



Námskeið fyrir trúnaðarmenn
25. mars 2011. Trúnaðarmannanámskeið I 2. þrep verður haldið 4. til 5. apríl 2011 í sal Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna. Farið verður í helstu ákvæði laga sem varða réttindi og skyldur launafólks og launagreiðenda. Stéttarfélagið kynnir réttindi félagsmanna sinna  hjá félaginu.



Endurskoðuð hagspá ASÍ - botninum náð og hægur vöxtur framundan
25. mars 2011. Allt bendir til þess að viðsnúningur sé að verða í íslensku efnahagslífi og hægur bati sé framundan næstu árin.Staðan á vinnumarkaði verður áfram erfið en mun lagastí takt við batnandi efnahagslíf. Í lok spátímans verður atvinnuleysið komið niður í 5,2%. Tímabundnar aðgerðir stjórnvalda styðja við heimilin og staða þeirra vænkast nokkuð en verður áfram þröng.



Kjaraviðræðurnar og aðkoma ríkisins
22. mars 2011. Í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir ber öllum saman um mikilvægi þess að efla atvinnustigið. Það er grunnurinn að kjarabótum til lengri tíma litið og forsenda þess að kjarasamningar náist.




Villandi málflutningur opinberra starfsmanna um lífeyrismál
21. mars 2011. Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að samræma lífeyrisréttindi landsmanna vegna þess óréttlætis sem ríkir milli annars vegar þeirra starfsmanna hins opinbera sem eru í samtökum opinberra starfsmanna og þeirra starfsmanna hins opinbera sem eru félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ, ásamt þeim mikla fjölda launamanna sem starfa á almennum vinnumarkaði.



Orlofshús Bárunnar, stéttarfélags sumarið 2011

17. mars 2011. Báran, stéttarfélag auglýsir orlofshús félagsins við Flúðir og einnig íbúð félagsins á Akureyri til umsókna fyrir sumarið 2011.Umsóknarfrestur er til 26. apríl nk. Hægt er að sækja um á heimasíðu félagsins www.baran.is. eða í gegnum síma Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna 480-5000.



Jákvæður fundur en mikil vinna eftir
17. mars 2011. Forystumenn Alþýðusambandsins og SA áttu í gær fund með sjö ráðherrum ríkisstjórnarinnar, þar á meðal forsætis- og fjármálaráðherra. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir fundinn hafa verið efnisríkan en á honum fóru aðilar vinnumarkaðarins yfir þau atriði kjaraviðræðna sem að snúa að stjórnvöldum.




ASÍ 95 ára
14. mars 2011. Alþýðusamband Íslands varð 95 ára laugardaginn, 12. mars. Það er ljóst að margir mikilsverðir sigrar hafa unnist í baráttu verkalýðshreyfingarinnar fyrir bættum kjörum og betra lífi á tæpri öld. Vökulögin, vinnulöggjöfin, lífeyrissjóðir, sjúkrasjóðir, atvinnuleysistryggingar og húsnæðismálin eru dæmi um þetta. Það er ljóst að margt væri með öðurm hætti í okkar þjóðfélagi ef baráttu verkalýðshreyfingarinnar hefði ekki notið við. Þessa er hollt að minnast á merkum tímamótum.



Ungar konur hvattar til dáða
9. mars 2011. Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur sett af stað herferð til að brýna ungar konur á vinnumarkaði til dáða hvar sem þær búa í heiminum. Ætlunin er að vekja þær til umhugsunar um réttindi sín og tækifæri. Yfirskrift verkefnisins er Decisions for Life eða Ákvarðanir fyrir lífið.



Öskudagurinn
9. mars 2011. Það var líf og fjör á Austurvegi 56 í dag af tilefni af öskudegi. Margir hressir krakkar í skrautlegum búningum tóku lagið. Í hópnum mátti sjá sjóræningja, beinagrind, kjúkling og trúð. Krakkar takk fyrir komuna, það var gaman að fá ykkur í heimsókn.



Stutt frétt af kjaraviðræðum
4. mars 2011 Kjaraviðræður þokast enn áfram smátt og smátt. Innan Starfsgreinasambandsins og annarra aðildarsambanda ASÍ er nú stefnt að þriggja ára samningi sem byggir m.a. á úrbótum í efnahagsmálum, atvinnumálum og félagsmálum. 



Eljan

4. mars 2011. Fyrirhugað er að næsta tölublað Eljunnar fréttablað Bárunnar, stéttarfélags og Verslunarmannafélags Suðurlands  komi út um miðjan apríl. Þessa dagana er verið að undirbúa útgáfu blaðsins.  Aðsendar greinar og tillögur að efni í blaðið skulu berast fyrir 20. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar á Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna í síma 480-5000.



Hádegisverðarfundur í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars
4. mars 2011. Staða konunnar er laus til umsóknar - jafnrétti úr viðjum vanans, er yfirskrift hádegisverðarfundar sem haldin verður á Grand hótel þriðjudaginn 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Fundurinn verður í Hvammi og hefst kl. 11:45. Á fundinum verða flutt þrjú áhugaverð erindi auk þess sem í boði verður léttur hádegisverður. Aðgangseyrir er 1900 kr.



Vörukarfan hefur hækkað um 5% í Bónus frá því í nóvember
2. mars 2011. Miklar hækkanir hafa orðið frá því í haust á grænmeti, ávöxtum, mjólkurvörum, ostum og kjötvörum í vörukörfu ASÍ, að því er fram kemur í nýrri mælingu verðlagseftirlitsins sem gerð var í febrúar (vika 7). Við samanburð á mælingu verðlagseftirlitsins frá því í nóvember 2010 (vika 44) og nú í febrúar, hækkar vörukarfan í öllum verslunum nema 11/11 og Samkaupum-Úrvali, en mesta hækkunin er í Hagkaupum um 9,1% og Bónus um 5,1%. Kostur neitaði að taka þátt í mælingunni.



Gangur kjaraviðræðna
2. mars 2011. Samninganefnd ASÍ hitti forystu SA á fundi hjá ríkissáttasemjara 10. febrúar til að freista þess að koma kjaraviðræðum í gang að nýju en þær höfðu að mestu legið niðri í tvær vikur vegna þeirrar kröfu SA að niðurstaða vegna breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu lægju fyrir áður en samið yrði. Niðurstaða þess fundar var að hefja samningaviðræður að nýju. Jafnframt var ákveðið að gefa landssamböndunum og félögunum rými til að vinna áfram að samningum um sín mál. Hefur sú vinna gengið vel.



Fréttir af samningamálum

25. febrúar 2011
Samkvæmt fréttum sem berast úr Karphúsinu þá ganga viðræður um ýmsa kafla aðalkjarasamnings nokkuð vel og þegar er búið að skrifa undir nokkra þeirra.




Ný skoðanakönnun - langflestir vilja sameiginlega launastefnu
Ný skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir ASÍ sýnir að 94% þeirra sem taka afstöðu vilja sambærilegar launahækkanir fyrir alla í komandi kjarasamningum á móti 6% sem vilja meiri launahækkanir til þeirra sem starfa í útflutningsgreinum. Þá vilja 48% að verkalýðshreyfingin leggi mesta áherslu á að tryggja kaupmátt launa í yfirstandandi kjaraviðræðum en 24% vilja að áherslan sé að tryggja atvinnuöryggi.



Mikilvægi trúnaðarmanna á vinnustöðum
Einn mikilvægasti tengiliður hvers stéttarfélags við félagsmenn sína er trúnaðarmaðurinn. Starf trúnaðarmannsins er oft misskilið og jafnvel gert lítið úr því en með bættri fræðslu og aukinni áherslu stéttarfélaganna sjálfra er það óðum að breytast.



Báran, stéttarfélag - nýr starfsmaður

18. febrúar 2011
Hjalti Tómasson hefur verið ráðinn tímabundið hjá Bárunni, stéttarfélagi. Hann mun meðal annars vinna að verkefnum sem snúa að trúnaðarmönnum, vinnustaðakynningum og aðstoða eftirlitsfulltrúa með vinnustaðaskírteinum. Hjalti er boðinn velkominn til starfa hjá Bárunni.



Vel heppnaður fundur um innra starf stéttarfélaganna
Báran, stéttarfélag og Verslunarmannafélag Suðurlands stóðu fyrir fundi þriðjudaginn 15. febrúar sl. með trúnaðamönnum, trúnaðarráðum og stjórnum félaganna. Markmið fundarins var að ræða hugmyndir um hvernig hægt væri að fara í saumana á innra starfi og hvort og þá hvað þarf að færa til betri vegar. Fulltrúar frá FIT, Félagi í iðn og tæknigreinum mættu einnig á fundinn en þessi þrjú félög reka sameiginlega þjónustuskrifstofu að Austurvegi 56 á Selfossi.



Verkfall starfsmanna í loðnubræðslum hefur verið afboðað
Sameiginleg samninganefnd AFLS Starfsgreinafélags og Drífanda Stéttarfélag samþykkti í dag að aflýsa boðuðu verkfalli í fiskimjölsverksmiðjunum níu á félagssvæði félaganna. Þá hefur Verkalýðsfélag Akraness einnig aflýst boðuðu verkfalli í fiksimjölsverksmiðjunni á Akranesi.




Kyrrstaðan rofin
Samninganefndir ASÍ og SA hafa rætt mögulega tímalengd og uppbyggingu væntanlegs kjarasamnings. Aðilar hafa orðið sammála um að setja kraft í kjaraviðræður sem miðast við gerð samnings til 3 ára. Reyna á að ljúka þeirri vinnu eins hratt og mögulegt er.



Miðstjórn ASÍ ályktar um stöðu kjaramála

Ákvörðun Samtaka atvinnulífsins að tengja saman með ólögmætum hætti viðræður um gerð kjarasamninga við tiltekna niðurstöðu Alþingis í sjávarútvegsmálum hefur sett allan vinnumarkaðinn í uppnám og óvissu. Það er skoðun miðstjórnar ASÍ að með þessu komi SA í veg fyrir að hægt verði að hefja markvissa uppbyggingu og vöxt atvinnulífsins, sem leitt gæti til fjölgunar starfa og aukinna tekna. Það skýtur því skökku við að hlusta á forystumenn SA tala um að þeir vilji fara atvinnuleiðina út úr kreppunni, því það er sú leið sem þeir hafa tekið í gíslingu vegna hagsmuna útgerðarmanna. Þetta er tvískinnungur af ódýrasta tagi.



Kristján Gunnarsson fellur frá formennsku í Starfsgreinasambandinu
Kristján Gunnarson formaður Starfsgreinasambands Íslands stígur til hliðar sem formaður sambandsins.



Formkröfur ekki virtar - verkfallið ólögmætt. Sérkjarsamningur viðurkenndur
Verkfallsboðun Afls og Drífanda vegna starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum 7. þ.m. er ólögmæt samkvæmt dómi Félagsdóms í gær (3. febrúar).  Forsenda dómsins er sú að að formlegar samningaviðræður hafi ekki farið fram fyrir milligöngu ríkissáttasemjara. Verkfallið er með öðrum orðum ólögmætt vegna þess að formkröfum er ekki fullnægt.  



Orlofshús Bárunnar, stéttarfélags um páska 2011

Báran, stéttarfélag auglýsir orlofshús félagsins við Flúðir og einnig íbúð félagsins á Akureyri til umsókna fyrir páskahelgina 2011. Umsóknarfrestur er til 11. mars og hægt er að sækja um á heimasíðu félagsins www.baran.is. eða í gegnum síma Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna 480-5000. Úthlutun orlofshúsa mun liggja fyrir 21. mars.



Áranguslausar kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins
Fundur hjá ríkissáttasemjara sem haldinn var í gær (2. febrúar) með samninganefnd Starfsgreinasambandsins og Samtökum atvinnulífsins reyndist áranguslaus að mestu. Annar fundur hefur ekki verið boðaður í kjaradeilunni.



Miðstjórn ASÍ harðorð í garð SA
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í gær þann 26. janúar sl. Miðstjórn ASÍ lýsir yfir megnri óánægju með þá stöðu sem upp er komin í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum. Samningsaðilar hafa á undanförnum vikum kannað forsendur fyrir því að samið verði til allt að þriggja ára á grundvelli samræmdrar launastefnu og aðgerðaáætlunar í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum. Allt benti til þess að hægt væri að ná breiðri samstöðu um slíka leið. Nú hafa Samtök atvinnulífsins lýst því yfir að samtökin muni taka efni slíks samnings og nota sem þvingunaraðgerð við stjórnvöld til að knýja fram að væntanlegar breytingar á fiskveiðistjórnarlöggjöfinni verði þóknanlegar LÍÚ.



Samtök atvinnulífsins setja eigin hugmyndafræði í uppnám
Fyrsti fundur samninganefndar Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins, eftir að kjaradeilunni var vísað til Ríkissáttasemjara þann 16. þ.m., var haldinn hjá sáttasemjara í gær (25. janúar).  



Skilyrtir kjarasamningar
Hvað ætli Samtökum atvinnulífsins þætti um ef verkalýðshreyfingin gerði það að skilyrði í kjarasamningum að fiskveiðikvótinn gengi til fólksins í landinu en ekki til útvalinna útvegsmanna?



Viðræðum slitið

Samninganefnd ASÍ ákvað á fundi sínum í gær (24. janúar) að slíta þeim viðræðum sem staðið hafa yfir síðustu vikur um mögulegar forsendur fyrir gerð kjarasamninga til allt að 3ja ára.  Eins og fram hefur komið gera Samtök atvinnulífsins það að skilyrði kjarasamninga, að niðurstaða fáist í sjávarútvegsmálum áður en gengið verði frá kjarasamningum. Samninganefnd ASÍ er ekki reiðubúin að setjast að viðræðum á þessum forsendum.



Samninganefnd Bárunnar stéttarfélags fundaði um stöðu kjaraviðræðna
Samninganefnd Bárunnar stéttarfélags kom saman til fundar þann 19. janúar sl. til að ræða stöðu kjaraviðræðna. Í samninganefndinni sitja trúnaðarmenn, varatrúnaðarmenn, stjórn og varastjórn sem eru fulltrúar af fjölmörgum vinnustöðum á félagssvæðinu. Á fundinum var kynnt og lögð fyrir tillaga að samræmdri launastefnu sem byggð er á hugmyndum forseta ASÍ. Samninganefndin samþykkti  að vinna áfram að tillögunni  með þeim fyrirvara að ekki verði gefið eftir af fyrri kröfum.



Starfsgreinasambandið vill skoða samræmda launastefnu
Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambandsins, annarra en Flóafélaganna þriggja, sem haldinn var í dag (21. janúar) gerðu fulltrúar aðildarfélaganna grein fyrir afstöðu viðkomandi félaga til hugmynda að samræmdri launastefnu á vinnumarkaði.




Kjaradeilu Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins vísað til ríkissáttasemjara
Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands (SGS) f.h. aðildarfélaga sinna annarra en Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis sem haldinn var 17. janúar sl. var samþykkt að vísa kjaradeilu SGS við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.



ASÍ fundar með ríkisstjórn um aðkomu að kjarasamningum
Samninganefnd Alþýðusambandsins átti nú eftir hádegið í dag (12. janúar 2011) fund með forystumönnum ríkisstjórnarinnar. Á fundinum kynnti samninganefndin þau atriði sem hún telur að ríkisstjórnin þurfi að koma að til að samningar geti tekist. Aðgerðaráætlunina sem kynnt var fyrir ríkisstjórn í dag má sjá hér að neðan.



Samkomulag um hækkun frítekjumarks á lífeyrissjóðstekjur
Landssamtök lífeyrissjóða og ríkisstjórnin hafa gert með sér  samkomulag um að draga nú þegar úr víxlverkunum milli bóta almannatrygginga og lífeyrissjóðsgreiðsla og hækka frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur ellilífeyrisþega gagnvart almannatryggingum í áföngum á árunum 2013-2015.



Tölvunámskeið fyrir félagsmenn Bárunnar, stéttarfélags

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa afar litla eða enga reynslu af tölvunotkun.

Farið er í undirstöðuatriði tölvunnar og hvernig hún vinnur. Aðaláhersla er lögð á að gera. þátttakendur færa um að vafra á Netinu. Einnig er farið í tölvupóst, byrjunaratriði í Word 2007. Þar sem námskeiðið er ætlað fyrir fáa í einu er hægt að sinna hverjum og einum persónulega.





Eljan

NÝTT fréttablað, Eljan, hóf göngu sína í byrjun desember. Báran, stéttarfélag og Verslunarmannafélag Suðurlands gefa út blaðið. Í fyrsta tölublaði er meðal annars viðtal við Ragnhildi Eiríksdóttur um starf trúnaðarmanns og kynning á Virk starfsendurhæfingu. Blaðið  mun koma út þrisvar til fjórum sinnum á ári og verður dreift til félagsmanna.



Opnunartími um jól og áramót

Þjónustuskrifstofa stéttarfélaganna verður lokuð 24., 27. og 31. desember. Opið verður að öðru leiti á hefðbundnum tíma milli jóla og nýárs. Opnum aftur á nýju ári mánudaginn 3. janúar 2011.



Jólakveðja
Báran, stéttarfélag sendir öllum félagsmönnum sínum og samstarfsmönnum nær og fjær bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt nýtt ár. Þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.



Mundu eftir desemberuppbótinni




Andlát - Ingibjörg R. Guðmundsdóttir
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir



Stéttarfélögin bjóða félagsmönnum á jólaföndurnámskeið

Stéttarfélögin á Austurvegi 56 Selfossi bjóða félagsmönnum á jólaföndurnámskeið í hurðakransa- aðventukransa og jólaskreytingagerð.



Heilbrigðisráðherra afhent mótmæli liðlega 10 þúsund Sunnlendinga gegn boðuðum niðurskurði í heilbrigðismálum

Fimmtudaginn 11. nóvember afhentu Sunnlendingar Guðbjarti Hannessyni heilbrigðisráðherra lista með mótmælum íbúa á Suðurlandi gegn áformuðum niðurskurði á fjárframlögum til heilbrigðisþjónustunnar á Suðurlandi.  Við sama tækifæri voru ráðherra einnig afhentir undirskriftalistar úr fleiri heilbrigðisumdæmum. 



Sunnlendingar afhenda ráðherrum undirskriftalista gegn niðurskurði

Mikill kraftur og samhugur er meðal Sunnlendinga í baráttunni gegn blóðugum niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni á landsbyggðinni. Undanfarna daga hefur verið safnað undirskriftum meðal íbúa á Suðurlandi undir mótmælaskjal þar sem áformuðum niðurskurði er mótmælt og skorað á ríkisstjórn og Alþingi að tryggja að sjúkrahúsunum á Selfossi, Vestmannaeyjum og Höfn verði ekki lokað eins og ætlunin er með fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011.



Skemmtilegur og lýðræðislegur ársfundur Alþýðusambands Íslands

Fyrirkomulag þeirrar vinnu sem viðhöfð var á ársfundi ASÍ sem haldinn var dagana 21. og 22 okt. var til fyrirmyndar og til þess fallið að allir gætu komið sýnum sjónarmiðum og skoðunum á framfæri. Fyrir vikið var þetta skemmtilegur og líflegur fundur.



Ný spá hagdeildar ASÍ gerir ráð fyrir hægfara bata
Hin djúpa lægð sem lagðist yfir íslenskt efnahagslíf í kjölfar hruns bankakerfisins á haustdögum 2008 hefur nú náð botni sínum og framundan eru ár hægfara endurbata og vaxtar. Á síðustu tveimur árum hefur ein króna af hverjum tíu horfið úr verðmætasköpun þjóðarinnar. Verkefni næstu ára verður að stækka þjóðarkökuna til þess að bæta megi hér lífskjör á ný. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri spá hagdeildar ASÍ um horfur í efnahagsmálum á árunum 2010-2013.



Ég er glaður í hjarta - reynslusaga frá Virk
,,Þegar ég var yngri sá ég engan tilgang með því að greiða stéttarfélagsgjöld. Nú er ég glaður í hjarta vegna allrar aðstoðarinnar frá stéttarfélaginu mínu og Starfsendurhæfingarsjóði í kjölfar slyssins sem ég lenti í. Nú skil ég mikilvægi þess að hafa gott stéttarfélag á bak við sig. Ráðgjafinn á vegum Starfsendurhæfingarsjóðs hefur jafnframt reynst mér afar vel.“



Fjölmennur samstöðufundur á Selfossi
Á annað þúsund manns mættu á samstöðufund sem haldinn var við Hótel Selfoss mánudaginn 11. október sl. Á fundinum var mótmælt fyrirhuguðum niðurskurði á fjárlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.



Allt að 111% verðmunur á þjónustu hjólbarðaverkstæða
Allt að 6.590 kr. verðmunur er á þjónustu hjólbarðaverkstæða við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu samkvæmt nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði á 35 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um land mánudaginn 27. september. KvikkFix í Kópavogi var oftast með lægsta verðið í könnunni. Mestur verðmunur var á þjónustu við dekkjaskipti á 18´´ jeppadekkjum (Mitsubishi Pajero) sem kostaði 5.950 kr. hjá KvikkFix í Kópavogi en 12.540 kr. hjá Sólningu í Kópavogi, munurinn er 6.590 kr. eða 111%.




Kjaraþing - helstu niðurstöður grasrótarinnar

Farið hefur verið yfir helstu niðurstöður kjarþingsins og er nokkuð ljóst að við eigum mikið verk fyrir höndum.  



Ályktun samþykkt á félagsfundi Bárunnar stéttarfélags 27. september sl.


Hvar er forgangsröðunin í íslensku samfélagi.
Báran, stéttarfélag og Sjúkraliðafélag Íslands harma þann niðurskurð sem engin sér fyrir endann á  Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi.




Kjaraþing Bárunnar og VMS

Kjaraþing Bárunnar og Verslunarmannafélags Suðurlands var haldið í Hótel Selfossi miðvikudaginn 22. september sl.



Nýtt vinnuplagg sjúkrasjóðs

Sjóðurinn styrkir sjóðsfélaga m.a vegna sjúkranudds, sjúkraþjálfunar, kírópraktors, krabbameinsskoðunar, skoðunar hjá hjartasérfræðingi, vegna kaupa á gleraugum, heyrnartækjum, tæknifrjóvgunar, ættleiðingar, líkamsræktar, dvalar á Heilsustofnun HNLFÍ og áfengismeðferðar.

Nýtt vinnuplagg var samþykkt á aðalfundi 3. júní sl og má nálgast það hér.



Lítiðlega dregið úr atvinnuleysi í sumar

Á Suðurlandi voru 664 að meðaltali atvinnulausir í júlí, eða 5,3%. Áfram er atvinnuleysið mest í mannvirkjagerð, verslun og iðnaði.



Vetrarleigutímabilið hefst 27.ágúst 2010.

Við tökum við umsóknum, tímabilið fram að áramótum. Hér getur þú séð hvað er laust á hverjum tíma.

þú getur haft samband í síma 480-5000 eða sótt um rafrænt ef þú villt tryggja þér lausa helgi/viku í orlofshúsum félagsins í vetur.



Atvinnuleysi á 1. ársfjórðungi

Fyrstu fjóra mánuði ársins hafa um 12% félagsmanna verið meira eða minna án atvinnu eða 241. Af þeim eru 127 búsettir á Selfossi, 41 í dreifbýli félagssvæðisins 19 á Eyrarbakka, 10 á Stokkseyri, 6 á Flúðum og 1 á Laugarvatni. Með aðra búsetu eru 37 félagsmenn. Atvinnuleysi ungs fólks á bilinu 17-20 ára með félagsaðild var 1.5% eða 30. Á aldrinum 21-30 ára félagsmanna voru 4% eða 86 án atvinnu á tímabilinu. 31-40 ára félagsmenn án vinnu voru 49 eða 2.5%, 41-50 ára án vinnu voru 1.5%, 51-60 ára án vinnu voru 1.6% og 61 árs og eldri voru 0.8% félagsmanna. Eftir kynjum voru karlar í meirihluta atvinnulausra eða 155 og konur 86. Atvinnuleysi var mest í janúar s.l en þá voru 9.1% án atvinnu. Í apríl voru 8.1 % félagsmanna atvinnulausir. Tölur um atvinnuleysi meðal félagsmanna fylgja nokkuð vel meðaltalstölum á Suðurlandi, þannig að reikna má með að atvinnuleysi hjá félögum hafi farið minkandi í maí og júní og sé nú á bilinu 7-8%.



Þurfum að standa saman

Stjórn Bárunnar stéttarfélags sendi frá sér ályktun fyrir skemstu, vegna lítils áhuga sveitarstjórnarmanna á viðræðum um atvinnumál. Ályktunin birtist í Dagskránni 8. júlí sl, en hún er svohljóðandi:

 

 

„Nú þurfum við að standa saman“

 

Stjórn Bárunnar, stéttarfélags á Selfossi lýsir yfir vonbrigðum sínum með niðurstöðu fundar sem stéttarfélögin á Suðurlandi boðuðu til á Hótel Selfossi með þingmönnum Sunnlendinga þann 30. júní sl.

Til fundarins voru boðaðir atvinnurekendur, launafólk og sveitarstjórnarmenn. Hagsmunir þessara aðila hafa líklega sjaldan eða aldrei legið jafn þétt saman og nú. Stéttarfélögin boða samvinnu með atvinnurekendum, launþegum og stjórnvöldum. Ástandið er grafalvarlegt og sveitarstjórnarmenn sjá sér ekki fært að mæta á jafn mikilvægan fund.

Við spyrjum; hvar voru sveitarstjórnarmenn? Lítið virðist vera í spilunum varðandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu og alls staðar virðast vera girðingar hvort heldur er hjá ríki og/eða sveitarfélögunum, annað hvort eru útboð í kæruferli, skipulagsmál sveitarfélaganna ekki frágengin, framkvæmdum hefur verið frestað og löggjafarvaldið hefur ekki ítök í framkvæmdavaldið. Við köllum eftir samstöðu og sanngirni af ráðamönnum þings og þjóðar i garð almennings sem hefur sýnt æðruleysi og göfuglyndi svo ekki sé meira sagt.

Stjórn Bárunnar, stéttarfélags á Selfossi.



Nýr formaður Bárunnar stéttarfélags

Halldóra Sigríður Sveinsdóttir var kjörinn formaður Bárunnar stéttarfélags á fjölmennum framhaldsaðalfundi sem haldinn var í gær  3.júní og hlaut hún góða kosningu. Fráfarandi formaður Ragna Larsen gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Þá varð endurnýun í stjórn félagsins, þar sem tveir nýir menn taka sæti. Félagið óskar nýjum formanni og stjórnarmönnum velfarnaðar í starfi, en þakkar um leið fórnfúst starf þeirra sem kveðja núna.



Samningur um vinnustaðaskirteini tekur gildi 15.ágúst

Alþingi samþykkti á fundi sínum 11. maí sl. ný lög um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Markmið laganna er að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Vinnustaðaskírteinunum er sérstaklega ætlað að auðvelda eftirlit með því að starfsmenn njóti þeirra kjara og réttinda sem þeim ber og koma í veg fyrir ólöglega háttsemi á íslenskum vinnumarkaði.



Framhaldsaðalfundur Bárunnar, stéttarfélags

Framhaldsaðalfundur verður haldinn þann 3. júní nk. kl. 20:00 að Austurvegi 56, Selfossi.

Dagskrá

Kosning stjórnar
Kosning í stjórnir og ráð
Breytingar á vinnuplaggi sjúkrasjóðs
Önnur mál

Stjórn Bárunnar, stéttarfélags



Aðalfundur 2010

Báran, stéttarfélag heldur aðalfund mánudagskvöldið

17. maí nk. í sal á 3. hæð að Austurvegi

56 á Selfossi. Fundurinn hefst kl. 20:00.

 

Dagskrá

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Breyting á reglugerð sjúkrasjóðs

3. Önnur mál

Kaffiveitingar í boði félagsins

Félagar fjölmennum!

Stjórn Bárunnar, stéttarfélags



Taxtahækkun 1.júni.

Hinn 1. júní 2010 skulu laun hækka um 2,5%. Hækki laun meira vegna sérstakrar hækkunar kauptaxta (6.500 kr) gildir sú hækkun. (Launagreiðslur 1.júlí n.k.)

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, fullar 173,33 unnar stundir á mánuði (40 stundir á viku), skulu vera sem hér segir fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki:

1. júní 2010 kr. 165.000 á mánuði Mánaðarlega skal greiða uppbót á laun viðkomandi starfsmanna sem ekki ná framangreindum tekjum, en til launa í þessu sambandi teljast allar greiðslur, þ.m.t. hverskonar bónus-, álags- og aukagreiðslur, sem falla til innan ofangreinds vinnutíma. Laun fyrir vinnu umfram 173,33 stundir á mánuði og endurgjald á útlögðum kostnaði reiknast ekki með í þessu sambandi.



Fjölbreytt dagskrá á 1. maí

1.maí var haldinn hátíðlegur í Árborg eins og víðast á landinu. Stéttarfélögin, Báran stéttarfélag, VMS,FIT og Foss efndu til kröfugöngu undir kjörorðinu „Við viljum vinna“ Fyrir hópnum fóru tveir prúðbúnir lögreglumenn, tveir félagar frá hestamannafélaginu Sleipni báru íslenska fánann og Lúðrasveit Selfoss marseraði ásamt liðsmönnum stéttarfélaganna og launafólki eftir Austurveginum á Selfossi. Gangan staðnæmdist síðan við Hótel Selfoss þar sem Lúðrasveitin tók „Nallan“ og nokkur lög til viðbótar.

Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins hélt kröftuga ræðu okkur til umhugsunar. Þau Anton Guðjónsson og Íris Erla Gísladóttir nemendur í FSu héldu síðan stórgott ávarp.  Þau bentu á skelfilega stöðu ungs fólks  sem býr nú við litla sem enga atvinnumöguleika og þau sem þó hafa vinnu búa við umhverfi sem er þeim andsnúið.

Þá steig veðurguðinn  Ingó á sviðið og spilaði nokkur lög við góðar undirtektir og tók litla fólkið kröftulega undir.

Að lokum var boðið upp á hressingu í Hótel Selfoss á Riverside.
Sunnlenska.is/Egill Bjarnason
Mynd: Sunnlennska/Egill Bjarnason




Báran heimsækir B.E.S á Eyrarbakka

Í dag heimsótti framkvæmdastj.Báurnnar, stéttarfélags Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri.(BES) Nemendur í 10.bekk fengu kynningu á starfsemi félagsins, tilgangi þess og markmiðum.  Allir fengu penna merktan Bárunni og barmerki, en hjá þeim er nú vinnustaðavika.

Félagið er ávalt tilbúið að verða við óskum um heimsóknir  með kynningu á starfsemi félagsins og hreyfingunni.



Hvers virði er íslenskur landbúnaður?

Matvælasvið Starfsgreinasambands Íslands heldur málþing um landbúnaðarmál á íslandi, stöðu greinarinnar og tækifæri. Málþingið verður haldið mánudaginn 26.apríl 2010 að Hótel Selfossi og hefst kl.11. Kristján Gunnarsson formaður SGS mun setja þingið. Ávarp flytur landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason, auk þess sem aðilar úr geiranum munu flytja erindi. Halldóra Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bárunnar stéttarfélags og sviðstjóri matvælasviðs SGS mun stýra þinginu.

 Við hvetjum félagsmenn sem starfa í landbúnaði og eða matvælaiðnaði að skrá sig á þingið á skrifstofu félagsins.



Aðalfundur Bárunnar
Aðalfundur Bárunnar, stéttarfélags verður haldinn mánudaginn 17. maí nk. að Austurvegi 56 3h kl. 20:00
ATH: Breyttur fundartími. Dagskrá verður auglýst síðar.
Hvetjum félagsmenn til að mæta.




Fundur með ASÍ um skipulagsmál.

Undanfarnar vikur hefur hópur starfsmanna á skrifstofu ASÍ farið um landið og átt fundi með fulltrúum úr stjórnum, varastjórnum og trúnaðarráðum aðildarfélaga ASÍ þar sem rætt hefur verið um skipulag alþýðusambandsins. Fundur með stéttarfélögunum á Suðurlandi var haldinn  23.mars sl. á Hótel Selfossi og var hann fjölsóttur. Gretar Þorsteinsson fv. forseti ASÍ fór þar yfir sögu og þróun Alþýðusambandsins. Stjórn og trúnaðarmenn félagsins tóku þátt í áhugaverðri hugmyndavinnu um skipulag sambandsins. Niðurstöður þessara funda verða síðan kynntar á Ársfundi ASÍ sem hladið verður næsta haust.



Langtíma atvinnuleysi vex

Atvinnulausir félagsmenn voru 189 í janúar sl. eða 9% félagsmanna og hafa aldrei verið jafn margir félagsmenn án atvinnu eftir hrunið 2008. Á sama tíma 2009 voru 147 félagsmenn án atvinnu. Langtímaatvinnuleysi hefur aukist mikið síðustu misseri. Nýir félagsmenn án atvinnu og langtíma atvinnulausir eru nú 73. Á síðustu 12 mánuðum hafa 39 félagsmenn á Flutnninga, bygginga og mannvirkjasviði bæst í hóp fólks án vinnu og 31 á matvælasviði en þar spilar inn, lok sláturtíðar. Á þjónustusviði hafa 14 félagsmenn misst vinnuna, en lágdeiða er venjulega í þeirri grein í janúar og febrúar. Aðrar deildir eru með mun færri skráða atvinnulausa, t.d. deild sjómanna, en þar er aðeins 1 skráður án atvinnu. Félagsmenn Bárunnar eru um 2000 og hefur fjöldinn haldist nokkuð stöðugur frá hruni.





Krefjumst aðgerða gegn atvinnuleysinu, gefum stöðuleikasáttmálanum líf

Þessa yfirskrift ber ályktun framkvæmdastjórnar Starfsgreinasambandsins  frá 16. mars sl. en þar krefst SGS  þess að alþingismenn taki höndum saman um endurreisn efnahagskerfisins og setji hagsmuni þjóðarinnar í forgang. Alþingi verður að vinna traust þjóðarinnar á ný og taka upp ábyrg vinnubrögð. Það þarf að endurheimta fyrra atvinnustig og lífskjör sem fyrst segir m.a. í ályktuninni. Báran Stéttarfélag tekur heilshugar undir þau orð og hvatningu  framkvæmdastjórnar SGS til ráðamanna um að taka hraustlega í árarnar svo atvinnulífið komist út úr brimsköflunum.       
Ályktunframkvæmdastjórnar SGS



Fundur með þingmönnum kjördæmisins

Nýlokið er fundi stéttarfélaganna á suðurlandi með þingmönnum kjördæmisins þar sem fyrir voru lagðar spurningar m.a. um framkvæmdir í fjórðungnum og mannaflsfrek verkefni í suðurlandskjördæmi. Fimm þingmenn kjördæmisins, einn frá hverjum stjórnmálaflokki mættu til leiks og sköpuðust gagnlegar umræður um málefni fjórðungsins. Þá hélt Ingunn Árnadóttir frá Ráðgjafastofu heimilanna tölu um skuldavanda heimilanna og tók dæmi um kjarnafjölskyldu á Suðurlandi sem sýndi berlega hversu alvalegur vandi er hjá fólki með lágar og meðaltekjur.

Fundurinn tókst í allastaði vel og verður  honum gerð frekari skil í héraðsfréttablaðinu Dagskránni.




 

Báran stéttarfélagAusturvegi 56 | 800 Selfossi 
Sími 480-5000  Fax: 480-5001 |  baran@baran.is 

Fyrirvari: Leitast verður við að hafa réttar upplýsingar á vef baran.is en ekki er unnt að ábyrgjast að það sé ávallt svo.

Veftré Um baran.is Aðgengi

Orlofshús Bárunnar Kjaramál Umsóknir Sendu inn beiðni um aðstoð