Við vinnum fyrir þig

Translate to

Nýr samningur við MS samþykktur

Þann 11. apríl sl. var undirritaður nýr samningur við Mjólkursamsöluna vegna verkafólks og bílstjóra í fjórum aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins: Bárunnar stéttarfélags, Stéttarfélagi Vesturlands, AFLi starfsgreinafélagi og Einingu-Iðju. Samningurinn snertir því þá sem starfa utan höfuðborgarsvæðisins og eru félagar í SGS.

 

Margir mismunandi samningar hafa verið í gangi á hverjum stað fyrir sig og hafa staðið yfir viðræður í marga mánuði um að samræma samningana. Það tókst á endanum. Báðum aðalkröfum fulltrúa starfsfólks var mætt, þ.e. að hækka bílstjóra um launaflokka og samræma samninginn. Önnur ákvæði héldust nær óbreytt að innihaldi.

Samningurinn var kynntur starfsfólki á Selfossi, í Búðardal, á Egilsstöðum og á Akureyri þann 19. apríl nk. og var kosið um hann samdægurs. Atkvæði voru talin upp úr einum sameiginlegum potti í dag, þann 21. apríl.

Niðurstaðan: 

Á kjörskrá voru 187

Greidd atkvæði voru 120

Kosningaþátttaka var 64%

Já sögðu 69

Nei sögðu 48

Auð atkvæði voru 3

 

Samningurinn er því samþykktur með 57,5% greiddra atkvæða.

Á myndinni, sem fengin er af vef SGS, má sjá Ingu Guðrúnu Birgisdóttur mannauðsstjóra MS, Ara Edwald forstjóra MS, Björn Inga Sveinsson trúnaðarmaðnn á Selfossi og Sigurð Svein Ingólfsson trúnaðarmann á Akureyri undirrita samninginn.

Frétt um undirritun: SGS.