Nánar um frétt
Forseti ASÍ á fundarferð um landið
17.08.2010
![]() |
|||
|
|
|||
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mun næsta mánuðinn gera víðreist um landið og hitta að máli stjórnir allra 53 aðildarfélaga Alþýðusambandsins. Áætlað er að forseti ASÍ verði á Selfossi 14. september nk og muni þá m.a. ræða við stjórn Bárunnar, stéttarfélags.
Umræðuefni fundanna verður annars vegar afmarkaðar tillögur að breytingum á skipulagi ASÍ og hins vegar mun forsetinn gera grein fyrir samskiptum Alþýðusambandsins við ríkisstjórn og SA á samningstímanum sem nú er að líða.Einnig má búast við að kröfugerð vegna komandi kjarasamninga komi til tals auk Evrópumála.



