Hafa samband


Nánar um frétt



Svikin loforð

11. janúar 2012
Sameiginlegur fundur samninganefndar Bárunnar, stéttarfélags og Verslunarmannafélags Suðurlands haldinn á Selfossi 11. janúar 2012 harmar vanefndir ríksstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana sem undirritaðir voru í maí 2011.
Á sama tíma og aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt á sig mikið erfiði og fórnir til að ná markmiðum samningsins þá hefur ríkisstjórn velferðar, jöfnuðar og lýðræðis svikið mikilvæg loforð í þríhliða samkomulagi milli aðila


Flest loforð um bætt kjör til handa þeim sem minnst bera úr býtum hafa verið svikin og ekkert bólar á fjárfestingum eða aðgerðum sem væntingar voru uppi um við undirskrift samningsins. Atvinnuleysi er viðvarandi og álögur á almenning aukast jafnt og þétt. Ekkert bólar á marglofuðum störfum og ekki er enn farið að vinna að jöfnuði lífeyrisréttinda heldur þvert á móti er hert á snörunni um háls almennu lífeyrissjóðanna.


Fundurinn minnir á að aftur og aftur hefur þessi ríkisstjórn, sem sótti umboð sitt til almennings, svikið loforð sín. Fundarmenn spyrja hvort
ríkisstjórnin telji sig geta notið trausts í því ljósi?


Fundurinn krefst þess að nú þegar verði farið í þær atvinnuskapandi aðgerðir sem lofað var, svo koma megi atvinnulífinu af stað þannig hér fari að skapast hagvöxtur sem byggir á öðru en að sækja pening í vasa launafólks.



Prenta frétt Senda frétt

Til baka

 

Báran stéttarfélagAusturvegi 56 | 800 Selfossi 
Sími 480-5000  Fax: 480-5001 |  baran@baran.is 

Fyrirvari: Leitast verður við að hafa réttar upplýsingar á vef baran.is en ekki er unnt að ábyrgjast að það sé ávallt svo.

Veftré Um baran.is Aðgengi

Orlofshús Bárunnar Kjaramál Umsóknir Sendu inn beiðni um aðstoð